Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Aron Guðmundsson skrifar 8. júní 2026 11:52 Andrea Kolbeins átti erfitt uppdráttar á EM í utanvegahlaupum í Slóveníu um nýliðna helgi. Íslenska hlaupadrottningin Andrea Kolbeinsdóttir, opnar sig um mikla erfiðleika á nýafstöðnu EM í utanvegahlaupum í Slóveníu í færslu á samfélagsmiðlum. Með færslunni birtir hún myndband frá erfiðum tímapunkti í hlaupinu sem Andrea segir kennslu um hvernig eigi ekki að tala við sjálfan sig. „
Það er mjög svekkjandi að ná ekki því besta úr sér þegar það skiptir manni mestu máli,“ skrifar Andrea í opinskárri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram eftir að hafa upplifað erfiðan dag á EM í utanvegahlaupum um nýliðna helgi þar sem að hún hafnaði í 31. sæti. Eins og líkaminn læsist Andrea, sem er ein af hlaupadrottningum Íslands, þurfti að há mikla baráttu við sjálfa sig þegar að hlutirnir voru ekki að fara eins og hún ætlaði sér. „Þegar kemur að stærsta markmiðinu er eins og líkaminn læsist, maginn herpist og hálsinn þrengist. Í kjölfarið fer hausinn með tilheyrandi neikvæðu sjálfstali og ég skokka í mark.“ Andrea hafði verið að gera frábæra hluti í aðdraganda EM og í viðtali við íþróttadeild Sýnar á dögunum opnaði hún sig um baráttu við stress og kvíða fyrir stórar keppnir og hefur hún unnið markvisst að því að sigrast á þeim þáttum. „Ég hélt ég væri komin lengra með þessa vinnu. Fannst ég mjög vel stemmd og róleg daginn og nóttina fyrir en svo fannst mér ég ekki hafa neina stjórn í hlaupinu sjálfu.“ Reif sjálfa sig niður Með færslunni birtir Andrea myndband úr hlaupinu sjálfu þar sem að Eyjólfur Guðgeirsson, hjólreiðakappi reynir að stappa í hana stálinu á erfiðum tímapunkti. „Eyjólfur náði myndbandi kennslu um hvernig maður á ekki að tala við sig.“ View this post on Instagram A post shared by Andrea Kolbeinsdóttir (@andreakolbeins) „Það er ekki styrkur að klára þegar að þú ert fokking skokkandi. Glatað,“ má heyra Andreu segja í myndbandinu eftir að Eyjólfur hafði sagt við hana að það fælist styrkur í því að klára hlaupið sem var 53,6 kílómetrar að lengd og fól í sér mikla hækkun. „Andskotinn hafi það. Þetta átti að vera svo góður dagur,“ sagði Andrea á meðan að Eyjólfur reyndi að stappa í hana stálinu og sagði við hana að hún væri flottust. „Ég er nefnilegast ekki flottust,“ svaraði Andrea sem í baráttu við hausinn reyndi að snúa neikvæðni yfir í jákvæðni og þakkaði Eyjólfi og þeim sem studdu hana á leiðinni fyrir stuðningninn.
Hlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sjá meira