Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júní 2026 19:49 Bruno Fernandes fagnar góðu marki sínu í kvöld. Gualter Fatia/Getty Images Portúgal vann 2-1 sigur á Síle í æfingaleik í aðdraganda HM karla í fótbolta í Oeira í Lissabon í kvöld. Upp úr sauð undir lok fyrri hálfleiks.
Markalaust var í fyrri hálfleik en portúgalska liðið var sterkari aðilinn í leiknum. Undir lok hálfleiksins sauð hins vegar lítillega upp úr þar sem mönnum lenti saman. Iván Román, 19 ára varnarmaður Síle, og Rafael Leao, kantmaður AC Milan, fengu báðir reisupassann fyrir að lemja til hvors annars. 🚨🚨| IVAN ROMAN AND RAFAEL LEAO HAVE BOTH BEEN SENT OFF! 🟥 pic.twitter.com/AQk5KavufG— CentreGoals. (@centregoals) June 6, 2026 Liðin léku tíu gegn tíu eftir hléið en margar stjörnur Portúgals fóru út af í hálfleik, þar á meðal Cristiano Ronaldo og Bernardo Silva. Rúben Neves tók sæti Silva á miðjunni og Goncalo Guedes fór fram í stað Ronaldo. Þeir tengdu saman í fyrsta markinu. Neves sendi Guedes í gegn með frábærri sendingu og Guedes kláraði laglega. Bruno Fernandes, besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili, skoraði svo annað markið með meiriháttar langskoti stundarfjórðungi fyrir leikslok. Lucas Cepeda klóraði svo í bakkann fyrir Síle í uppbótartíma en það náði ekki lengra hjá gestunum. Portúgal vann leikinn því 2-1. Næst mætir liðið Nígeríu í æfingaleik þann 10. júní. Kongó, Úsbekistan og Kólumbía bíða svo í riðlakeppni HM.
Portúgalski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjá meira