Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. júní 2026 21:23 Fjöldi fólks hefur tjáð sig um ákvörðun hjónanna á samfélagsmiðlum og meðal annars sakað þau um að stunda arfbætur. Jesse Ridgeway/Instagram Vinsælir áhrifavaldar vestanhafs segjast hafa fengið yfir sig holskeflu gagnrýni og haturs eftir að þau greindu frá því í vikunni að þau hefðu ákveðið að binda enda á meðgöngu þar sem fóstrið hefði verið greint með Downs heilkenni.
Jesse Ridgeway, sem er vinsæll á YouTube og birtir þar myndskeið um fjármál, tækni og fjölskyldulíf sitt og eiginkonu sinnar Ashley, greindi frá því í mars að þau hjónin ættu von á barni. Á miðvikudaginn sagði hann hins vegar frá því að þau hefðu ákveðið að binda enda á meðgönguna. Ridgeway sagði ákvörðunina hafa verið afar erfiða og að þau skyldu það ef hún myndi valda einhverjum vonbrigðum. Hann gerði sér grein fyrir því að meðal aðdáenda hans væru fatlaðir einstaklingar og einstaklinger með Downs; þeir skiptu máli og hann fagnaði tilvist þeirra. Eftir að hafa verið nokkuð jákvæð í upphafi, hefðu þau hjónin hins vegar tekið hina erfiðu ákvörðun eftir að hafa fengið nánari upplýsingar um það hvað það fælist í því að eignast barn með Downs. Þá taldi hann upp algenga fylgifiska Downs á borð við hjartagalla og þroskaskerðingu. Matt Walsh, annar vinsæll áhrifavaldur vestanhafs, er meðal þeirra sem hefur fordæmt Ridgeway og eiginkonu hans og sakað þau um að „myrða barn“. People var meðal þeirra miðla sem fjölluðu um ákvörðun Ridgeway og eiginkonu hans en í dag var greint frá því að hjónin hefðu fengið yfir sig holskeflu gagnrýni og haturs vegna ákvörðunar sinnar. Ridgeway segir í yfirlýsingu að þau hafi staðið frammi fyrir afar erfiðu vali og sorg en á meðan margir hefðu virt ákvörðun þeirra hefðu þau einnig verið kölluð morðingjar, líkt við Hitler og borist líflátshótanir. „Það sem er enn meira truflandi er að margt af þessu fólki notar Guð eða Jesú til að réttlæta hótanir í okkar garð og að vilja kasta okkur í helvíti,“ segir Ridgeway. Þá sagði hann viðbrögðin líklega mega rekja til þess að ákvörðunin sem þau hjónin tóku væri tabú og fáir sem tjáðu sig um þá stöðu sem þau lentu í. Samkvæmt National Institutes of Health í Bandaríkjunum er endir bundin á um 67 til 85 prósent meðganga eftir Downs greiningu.
Þungunarrof Downs-heilkenni Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira