HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. júní 2026 09:02 Vinaleg faðmlög og handabönd voru milli Vestur-Þjóðverja og Austurríkismanna eftir leikinn. Mönckedieck/picture alliance via Getty Images Austurríki gegn Alsír virkar kannski ekki eins og mest spennandi leikurinn á HM. Þar fá Alsíringar hins vegar tækifæri til að hefna fyrir einn stærsta skandal fótboltasögunnar, þegar Austurríki tapaði viljandi á HM 1982 til að senda Alsír heim.
Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir fimm daga. Vísir telur niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur HM og í dag minnumst við „skandalsins í Gijon“. Enginn bjóst við miklu af Alsíringum þegar þeir komust í fyrsta sinn á HM árið 1982. Mótið var þá stækkað úr 16 liðum í 24 lið og lið á borð við Alsír, Kamerún, Hondúras og Kúveit tóku þátt í fyrsta sinn. Almennt voru afrísk lið ekki hátt skrifuð á þessum tíma en Alsíringum var sýnd mikil vanvirðing. Ríkjandi Evrópumeistarar Vestur-Þýskalands mættu Alsír í fyrsta leik riðlakeppninnar. Fyrir leik sagði einn leikmaður Þjóðverja að sjöunda markið yrði tileinkað eiginkonum leikmanna og áttunda markið myndu þeir tileinka hundum sínum. Þeir bjuggust semsagt við stórsigri en annað kom á daginn þegar Alsír mætti út á völl með sinn skemmtilega og fjöruga fótbolta. Öllum að óvörum tókst Alsír að vinna 2-1 sigur gegn Vestur-Þýskalandi. Þetta var í fyrsta sinn sem þjóð frá Afríku tókst að vinna þjóð frá Evrópu á HM og enn þann daginn í dag eru þetta einhver óvæntustu úrslit HM-sögunnar. Alsíringar mættu á mótið í miklu stuði eftir að hafa náð alla leið í úrslitaleik Afríkubikarsins árið áður. Mirror Syndication International/Mirrorpix via Getty Images Vestur-Þjóðverjar náðu að bæta úr því í næsta leik með 4-1 stórsigri gegn Síle. Alsír tapaði næsta leik gegn Austurríki en náði síðan að vinna 3-2 sigur gegn Síle. Á þessum tíma voru lokaleikir riðlakeppninnar ekki spilaðir allir á sama tíma. Alsír spilaði þess vegna gegn Síle, og fagnaði 3-2 sigri, degi áður en Austurríki og Vestur-Þýskaland mættust. Alsíringar misstu 3-0 forystu niður í 3-2 sigur gegn Síle og voru því ekki með góða markatölu. Mark Leech/Offside via Getty Images Þá var komin upp sú staða að Vestur-Þýskaland þurfti að vinna Austurríki í lokaleiknum, Austurríki hafði hins vegar efni á því að tapa, en ekki með meira en þremur mörkum. Og það er akkúrat það sem gerðist. Vestur-Þýskaland komst 1-0 yfir eftir tíu mínútur og fagnaði sigri. Vestur-Þýskaland og Austurríki fóru því áfram á hagstæðri markatölu en Alsír sat eftir. Leikur Vestur-Þýskalands og Austurríki var einhver allra mesti farsi sem fótboltinn hefur séð. Vestur-Þýskaland náði forystunni eftir tíu mínútna leik og síðustu áttatíu mínútur spiluðu liðin bara reitarbolta. Hvorki Vestur-Þjóðverjar né Austurríkismenn gerðu tilraun til að breyta stöðunni, vitandi að þau færu bæði áfram og Alsír yrði eftir. Karl-Heinz Rummenigge skoraði markið en þegar hann var tekinn af velli bauluðu 40.000 áhorfendur á hann og liðsfélaga hans. Mönckebild/picture alliance via Getty Images „Que se besen [leyfið þeim að kyssast]” kölluðu spænskir áhorfendur úr stúkunni. „SKAMMIST YKKAR“ var fyrirsögn þýska blaðsins Bild daginn eftir. „Þegar ég sá einn leikmann rekja boltann upp völlinn, snúa við og senda alla leið til baka á markmanninn, vissi ég að eitthvað mikið væri að. Hann gerði enga tilraun til að setja boltann inn á teiginn eða í hættulega stöðu sóknarlega,“ sagði dómari leiksins, Bob Valentine, síðar. Leikurinn er nú þekktur sem „skandallinn í Gijon“ og er megin ástæða þess að lokaleikirnir í riðlakeppninni fara nú fram á sama tíma. Austurríki og Alsír munu því mætast í lokaleik J-riðilsins á HM 2026, á sama tíma og Argentína mætir Jordaníu. Þar fá Alsíringar loks tækifæri til að hefna fyrir einn stærsta skandal í sögu HM.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Brasilíumenn eru sigursælasta þjóð í sögu heimsmeistarakeppninnar með fimm heimsmeistaratitla og eru eina þjóðin sem hefur alltaf verið með. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir átta daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og nú er komið að því að skoða mótið þegar Norður-Kórea náði betri árangri en Brasilía. 3. júní 2026 09:01 HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Það þarf ekki að fara mjög langt aftur í HM-söguna til að finna dæmi um gróf áhrif spillingar á úrslit heimsmeistaramóts í fótbolta. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir níu daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. 2. júní 2026 09:01 HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir tíu daga. Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og í dag minnumst við þess þegar Vestur-Þjóðverjar unnu sinn þriðja og síðasta heimsmeistaratitil undir nafni Vestur-Þýskalands. Hetja liðsins kom þá úr óvæntri átt. 1. júní 2026 09:01 HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Ef að þá nýráðinn sálfræðingur brasilíska landsliðsins hefði fengið að ráða þá hefðu Pelé og Garrincha ekki spilað á HM í Svíþjóð 1958. Báðir fengu þó að fara á mótið og sigruðu þar hjörtu heimsbyggðarinnar. 31. maí 2026 09:00 HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Þrettán dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs. Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Byrjum á argentínskum markverði sem pissaði á völlinn. 29. maí 2026 09:01 HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Tólf dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Á HM 1990 grét enska þjóðin með Paul Gascoigne 30. maí 2026 09:02 HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Það voru margar hetjur þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrsta sinn sumarið 1998. Ein af þeim óvæntu sá til þess að þeir fengu tækifæri til að spila til úrslita um heimsmeistaratitilinn. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir sjö daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur HM karla. 4. júní 2026 09:00 Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira
HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Brasilíumenn eru sigursælasta þjóð í sögu heimsmeistarakeppninnar með fimm heimsmeistaratitla og eru eina þjóðin sem hefur alltaf verið með. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir átta daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og nú er komið að því að skoða mótið þegar Norður-Kórea náði betri árangri en Brasilía. 3. júní 2026 09:01
HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Það þarf ekki að fara mjög langt aftur í HM-söguna til að finna dæmi um gróf áhrif spillingar á úrslit heimsmeistaramóts í fótbolta. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir níu daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. 2. júní 2026 09:01
HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir tíu daga. Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta og í dag minnumst við þess þegar Vestur-Þjóðverjar unnu sinn þriðja og síðasta heimsmeistaratitil undir nafni Vestur-Þýskalands. Hetja liðsins kom þá úr óvæntri átt. 1. júní 2026 09:01
HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Ef að þá nýráðinn sálfræðingur brasilíska landsliðsins hefði fengið að ráða þá hefðu Pelé og Garrincha ekki spilað á HM í Svíþjóð 1958. Báðir fengu þó að fara á mótið og sigruðu þar hjörtu heimsbyggðarinnar. 31. maí 2026 09:00
HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Þrettán dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs. Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Byrjum á argentínskum markverði sem pissaði á völlinn. 29. maí 2026 09:01
HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Tólf dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Á HM 1990 grét enska þjóðin með Paul Gascoigne 30. maí 2026 09:02
HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Það voru margar hetjur þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrsta sinn sumarið 1998. Ein af þeim óvæntu sá til þess að þeir fengu tækifæri til að spila til úrslita um heimsmeistaratitilinn. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir sjö daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur HM karla. 4. júní 2026 09:00