Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2026 10:30 Svo gæti vel farið að stuðningsmannahópar Celtic komi í veg fyrir að Robbie Keane verði ráðinn þjálfari félagsins. Getty/ David Balogh Robbie Keane hefur verið sterklega orðaður við skosku meistarana í Celtic síðan hann sagði starfi sínu lausu hjá ungverska félaginu Ferencvaros. Nú hafa nokkrir stuðningsmannaklúbbar Celtic hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem þeir mótmæla hugsanlegri ráðningu Keane.
Nýlegar fréttir benda til þess að hinn 45 ára Keane hafi átt í viðræðum við eigendur skosku meistaranna. Ákvörðun hans um að vera áfram í Ísrael eftir að átökin á Gaza hófust var hins vegar gagnrýnd í heimalandi hans og hefur snúið hluta af stuðningsmönnum Celtic gegn honum. Yfirlýsing þar sem gefið var í skyn að ráðning Keane „myndi valda djúpstæðum ágreiningi meðal stuðningsmanna“ var gefin út af hópi sem kallar sig Celtic Fans for the Liberation of Palestine og nú hefur North Curve Celtic-aðgangurinn á X birt nöfn 67 hópa sem virðast hafa stutt þá afstöðu. Ómögulegt að horfa fram hjá ákvörðun Keane „Fyrir okkur er ómögulegt að horfa fram hjá ákvörðun Robbie Keane um að stýra Maccabi Tel Aviv á meðan á þjóðarmorðinu á Gaza stendur,“ segir í yfirlýsingunni. „Celtic var stofnað af samfélagi sem mótaðist af arfleifð þjóðarmorðs, landflótta og hungursneyðar.“ „Rætur félagsins okkar liggja í samstöðu með þeim sem hafa þolað óréttlæti og kúgun. Við megum ekki gleyma hvaðan við komum, né snúa baki við þeim sem standa frammi fyrir þjóðarmorði í dag.“ Vann bæði deild og bikar í Ísrael Keane var ráðinn til Maccabi í júní 2023 en sprengjuárásir Ísraels á Gaza hófust eftir árásir Hamas 7. október. Hann sagði starfi sínu lausu sumarið 2024 eftir að hafa unnið tvöfalt, deildina og bikarinn, og færði sig yfir til Ferencvaros í janúar 2025. Keane, sem var á farsælu láni hjá Celtic Park árið 2010, sagði síðar í hlaðvarpinu Rio Ferdinand Presents að hann hefði fundið fyrir djúpri ábyrgðartilfinningu gagnvart starfsfólki sínu og leikmönnum, sem hafði áhrif á ákvörðun hans um að vera áfram í Ísrael.
Skoski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira