Formúla 1

Verða fleiri framúrakstrar í Móna­kó?

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton vonar að styrkleikar Ferrari bílsins nýtist í Mónakó.
Lewis Hamilton vonar að styrkleikar Ferrari bílsins nýtist í Mónakó. Rudy Carezzevoli/Getty Images

Formúlu 1-kappaksturinn í Mónakó er um helgina og spennandi að sjá hvort að nýja vélin í bílunum geri þeim kleift að taka fram úr. Mónakó-brautin er þekkt fyrir að vera þröng og hæg sem gerir það erfitt fyrir ökumenn að taka fram úr hvor öðrum.

Mónakóbrautin er þekkt fyrir að þar er lítið um framúrakstur. Með tímanum hafa Formúlu 1-bílarnir orðið stærri og breiðari sem gerir framúrakstur enn þá erfiðari. Sem dæmi voru aðeins fjórir framúrakstrar í allri keppninni í fyrra á meðan meðaltal framúrakstra á því tímabili var 66,9 framúrakstrar.

Ökumenn hafa kvartað mikið yfir nýju vélunum sem voru settar í bílana í byrjun tímabils. Það helsta sem þeir kvarta yfir er að þeir geti ekki notað orku úr rafmagnsmótornum allan hringinn og er því verið að takmarka hraða bílanna. Þessu verður hins vegar breytt fyrir Mónakókappaksturinn þar sem ökumenn eiga að geta notað rafmagnsorkuna allan hringinn.

Framúrakstrarnir í ár hafa einkennst af því að bílar eru oft að skipta um stöður sín á milli. Þessum framúrökstrum hefur verið líkt við leikfangið yo-yo þar sem bílarnir taka fram úr hvor öðrum til skiptis eins og leikfangið yo-yo.

Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, vonar að styrkleikar Ferrari bíls hans muni nýtast í Mónakó. Stærsti veikleiki Ferrari bílsins hefur verið kraftur vélarinnar en í Mónakó keppninni skiptir hann minna máli en í öðrum keppnum. Hamilton gekk til liðs við Ferrari á síðasta tímabili en er enn þá að bíða eftir fyrsta sigrinum sínum fyrir liðið.


Tengdar fréttir

Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann

Formúlu 1-stjarnan Charles Leclerc heldur áfram næstu árin að keyra fyrir Ferrari-liðið í heimsmeistarakeppni Formúlu 1 á komandi árum. Hann hefur skrifað undir nýjan samning fyrir kappaksturinn í Mónakó þar sem hann er á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×