Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júní 2026 18:38 Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, ásamt málverki af sjálfri sér á Alþingi sem var nýlega afhjúpað. Vísir/Sigurjón Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi þingkona Sjálfstæðisflokks og forseti þingsins, verður sveitarstjóri í sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Tilkynnt var um ráðningu hennar í dag á sama tíma og nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlistans undirritaði málefnasamning sinn.
Fyrst var greint frá þessu á Skessuhorni en þar kemur einnig fram að samkvæmt samkomulagi flokkanna verði Sigurður Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, formaður byggðarráðs og Jovana Pavlovic, oddviti Borgarbyggðarlistans, forseti sveitarstjórnar. Í málefnasamningi þeirra sé lögð áhersla á að byggja upp sterkt og sjálfbært samfélag þar sem velferð íbúa og ábyrg fjármál fari saman. Sjálfstæðisflokkurinn varð stærstur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps í kosningunum í maí og féll þar með meirihluti Framsóknarflokksins í bænum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 29,3 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa í níu manna sveitarstjórn og Borgarbyggðarlistinn 23,5 prósent atkvæða og tvo fulltrúa. Þannig mynda þau fimm manna fulltrúa. Framsóknarflokkurinn fékk 25,4 prósent atkvæða og tvo fulltrúa og Miðflokkurinn 21,9 prósent atkvæða og tvo fulltrúa líka. Stefán Broddi Guðjónsson gegndi embætti sveitarstjóra á síðasta kjörtímabili en í sveitarfélaginu er meðal annars að finna Borgarnes, Hvanneyri, Reykholt, Bifröst, Varmaland og Kleppjárnsreyki. Sveitarfélögin sameinuðust á síðasta ári.
Borgarbyggð Skorradalshreppur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Guðveig Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð, segir ánægjulegt að sameining Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hafi verið samþykkt með meirihluta í atkvæðagreiðslu í gær. Praktísk vinna við sameiningu hefst núna en formlega tekur sameiningin gildi eftir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. 21. september 2025 10:26 Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Talsverður meirihluti íbúa Skorradalshrepps og Borgarbyggðar greiddu atkvæði með sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningu sem lauk í dag. 20. september 2025 20:49 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á hámarksrefsingu yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira
Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Guðveig Eyglóardóttir, forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð, segir ánægjulegt að sameining Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hafi verið samþykkt með meirihluta í atkvæðagreiðslu í gær. Praktísk vinna við sameiningu hefst núna en formlega tekur sameiningin gildi eftir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. 21. september 2025 10:26
Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Talsverður meirihluti íbúa Skorradalshrepps og Borgarbyggðar greiddu atkvæði með sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningu sem lauk í dag. 20. september 2025 20:49