Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Kjartan Kjartansson skrifar 2. júní 2026 14:53 Skjáskot úr vestismyndavél eins lögregluþjónsins sem handjárnaði Henry Nowak. Viðbrögð lögreglu við drápi á ungum manni í Southampton í fyrra valda nú fjaðrafoki í breskum stjórnmálum. Fjarhægriöfl halda því fram að viðbrögðin sýni fram á að hvítt fólk sé raunveruleg fórnarlömb kynþáttafordóma í Bretlandi.
Réttarhöldum yfir Vickrum Digwa, breskum sikka, fyrir morð á Henry Nowak, átján ára gömlum pilti, í Southampton á Englandi í desember lauk í gær. Þá dæmdi dómari Digaw í lífstíðarfangelsi. Digwa stakk Nowak til bana með skrauthníf sem hann bar í slíðri að hætti sikka. Hann laug síðan að lögreglu að Nowak hefði ráðist á sig með kynþáttaníði og slegið af honum vefjarhött. Fjölskylda Digaw var sökuð um að hylma yfir glæpinn. Lögreglumenn handjárnuðu Nowak þar sem honum blæddi út á jörðinni. Á upptöku úr líkamsmyndavél eins lögreglumannanna heyrðist Nowak segja að hann hefði verið stunginn en lögreglumaður svaraði: „það held ég ekki, vinur.“ Nowak lést af sárum sínum. Hluta myndbandsins má sjá í spilaranum hér að neðan. 'You've been stabbed? Don't think you have mate'.Police bodycam footage captured the moment police wrongly handcuffed 18-year-old Henry Nowak after he was stabbed by Vickrum Digwa. 🔗Latest: https://t.co/Wd4HXoiF5l pic.twitter.com/W47VYEBWms— Sky News (@SkyNews) June 2, 2026 Þrátt fyrir að faðir Nowak, sem fordæmdi viðbrögð lögreglu, hefði hvatt til stillingar og að drápið á syni hans yrði ekki notað til þess að ala á frekari sundrung í bresku samfélagi hefur hann talað fyrir daufum eyrum. Þannig hélt Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, stærsta flokks landsins í skoðanakönnunum, sérstakt ávarp í gær til þess að segja að „hvít líf skipta jafnmiklu máli og svartra“. Vísaði hann þar til slagorðsins „líf svartra skipta máli“ sem var útbreitt í mótmælum víða um heim eftir að bandarískir lögreglumenn urðu George Floyd, óvopnuðum blökkumanni, að bana árið 2020. Fullyrti Farage að réttindi hvítra Breta skiptu minna máli en „þjóðernisminnihluta“. Hann væri kominn með nóg af fordómum gegn hvítu fólki. Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins X og einn helsti boðberi hvítrar þjóðernishyggju á vesturlöndum, kallaði framferði bresku lögreglunnar „viðbjóðslegt“ og kallaði eftir að lögreglumennirnir sem hunsuðu sár Nowak yrðu kærðir. Lögreglan í Hampshire hefur beðist afsökunar á mistökum sínum. Eftirlitsnefnd með störfum lögreglu hefur framferði lögreglumannanna til rannsóknar, að sögn The Guardian. Lögregluþjónum hefur borist morðhótanir vegna málsins. Robert France, yfirmaður lögreglunnar í Hampshire, birti myndbandsávarp um málið, eftir að Digwa var sakfelldur. Breskir sikkar hafa undanþágu í breskum lögum til þess að bera hnífa á almannafæri. Rótgróið samfélag sikka er í Bretlandi en það er fjórði fjölmennasti trúarhópur landsins. Samtök þeirra hafa harmað drápið á Nowak og lofaði fjölskyldu hans fyrir stillingu þeirra. Þingmenn Umbótaflokksins og Íhaldsflokksins hafa kallað eftir því að slíkar undanþágur verði afnumdar eftir drápið á Nowak. Nick Thomas-Symonds, ráðherra í ríkisstjórn Verkamannaflokksins, segir það ekki standa til. Slíkar undanþágur séu fyrir trúarástæður og ákveðnar hátíðir. „Ef litið er til þess sem dómarinn sagði í málinu þá sagði hann á þeirri stundu sem árásarmaðurinn dró hnífinn úr slíðrinu hafi ekki lengur nokkur undanþága í lögum verið til staðar,“ sagði Thomas-Symonds.
England Bretland Erlend sakamál Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Sjá meira