Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. júní 2026 10:08 Frá Reykjabúi. Vísir/Vilhelm Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. Þetta herma heimildir fréttastofu. Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við Vísi að innbrotið sé áþekkt og innbrotið hjá Stjörnugrís. Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi aðfaranótt 12. maí síðastliðinn og skilin eftir svokölluð stefnuyfirlýsing á staðnum. Tíu smágrísir drápust í innbrotinu þar sem dýrum var sleppt út. Sagði Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss að innbrotið hefði verið gert undir yfirskini dýravelferðar. Hann sagði ljóst að nýr veruleiki blasi við matvælaframleiðendum á Íslandi, öryggisgæslan hefði hingað til verið lítil sem engin en ljóst yrði að nú þyrfti að bregðast við. Ljóst er að innbrotið hjá Reykjabúi í Mosfellsbæ nú er keimlíkt. Ekki er ljóst hver ber ábyrgð. „Við vitum ekki hverjir voru að verki að svo stöddu, við erum bara komin á fullt að afla gagna. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi,“ segir Hjördís. Voru mikil skemmdarverk á svæðinu, hvernig var aðkoman? „Þetta var eitthvað minna rask heldur en í hinu, þó þetta sé alltaf huglægt en það er ljóst að þetta var þó tjón sem hlaust þarna af. Þetta eru mjög áþekk tilvik.“ Veistu meira um málið eða varst þú í lauginni þegar atvikið átti sér stað? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Matvælaframleiðsla Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira
Þetta herma heimildir fréttastofu. Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við Vísi að innbrotið sé áþekkt og innbrotið hjá Stjörnugrís. Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi aðfaranótt 12. maí síðastliðinn og skilin eftir svokölluð stefnuyfirlýsing á staðnum. Tíu smágrísir drápust í innbrotinu þar sem dýrum var sleppt út. Sagði Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss að innbrotið hefði verið gert undir yfirskini dýravelferðar. Hann sagði ljóst að nýr veruleiki blasi við matvælaframleiðendum á Íslandi, öryggisgæslan hefði hingað til verið lítil sem engin en ljóst yrði að nú þyrfti að bregðast við. Ljóst er að innbrotið hjá Reykjabúi í Mosfellsbæ nú er keimlíkt. Ekki er ljóst hver ber ábyrgð. „Við vitum ekki hverjir voru að verki að svo stöddu, við erum bara komin á fullt að afla gagna. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi,“ segir Hjördís. Voru mikil skemmdarverk á svæðinu, hvernig var aðkoman? „Þetta var eitthvað minna rask heldur en í hinu, þó þetta sé alltaf huglægt en það er ljóst að þetta var þó tjón sem hlaust þarna af. Þetta eru mjög áþekk tilvik.“ Veistu meira um málið eða varst þú í lauginni þegar atvikið átti sér stað? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið eða varst þú í lauginni þegar atvikið átti sér stað? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Matvælaframleiðsla Mosfellsbær Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira