Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. júní 2026 15:00 Þráinn Freyr Vigfússon er yfirkokkur og einn eigenda ÓX. Facebook/Þráinn Stjörnukokkar landsins bíða spenntir eftir afhjúpun Michelin Nordic-stjarnanna sem verða tilkynntar í beinu streymi frá Kaupmannahöfn í dag. Meðal þeirra er Þráinn Freyr Vigfússon eigandi Óx sem er nú þegar með eina Michelin-stjörnu.
Matur á mbl greinir frá því að Þráinn sé staddur í Kaupmannahöfn fullur tilhlökkunar en stjörnurnar verða tilkynntar í tónleikasalnum í tívolíinu í Kaupmannahöfn. Michelin-stjörnurnar eru einhver mesta viðurkenning sem hægt er að fá í veitingabransanum og endurspegla framúrskarandi matargerð en hundrað ár eru frá því stjörnurnar voru fyrst afhentar. Veitingastaðirnir Óx, Moss og Dill eru þeir einu hérlendis sem hafa fengið þann mikla heiður að hljóta stjörnu en margir aðrir íslenskir veitingastaðir fá meðmæli Michelin sem er sömuleiðis mikil viðurkenning. Má þar nefna veitingastaðina Tides, Hosiló, Matur og drykkur, OTO og að lokum Sumac sem er sömuleiðis í eigu Þráins. Veitingastaðurinn Dill er sá fyrsti hérlendis sem hlaut Michelin-stjörnu árið 2017 og hefur haldið henni síðan fyrir utan árið 2019. Óx hlaut fyrstu Michelin-stjörnuna árið 2022 og svo græna Michelin-stjörnu í fyrra sem undirstrikar sjálfbærni í matargerðinni. Moss hlotnaðist sá heiður að fá Michelin-stjörnu árið 2023 og hefur það haldist óbreytt síðan. Hér má fylgjast með beinu streymi þar sem í ljós kemur hvort fleiri íslenskir veitingastaðir hljóti stjörnu og jafnvel hvort Óx eða Moss bæti við sig annarri stjörnu. Streymið hefst klukkan 16:00 á íslenskum tíma.
Matur Veitingastaðir Michelin Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira