Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Samúel Karl Ólason skrifar 1. júní 2026 10:32 Jensen Huang opinberaði nýju flöguna á ráðstefnu í Taívan í morgun. AP/Chiang Ying-ying Jensen Huang, forstjóri Nvidia, opinberaði í morgun nýja tölvuflögu sem á að gera fólki kleift að nýta sér gervigreind án þess að þurfa að treysta á skýjaþjónustu. Búist er við því að flagan muni geta leitt til grundvallarbreytinga þegar kemur að því hvernig fólk notar gervigreind.
Flagan heitir RTX Spark og var þróuð í samvinnu við Microsoft og taívanska fyrirtækið MediaTek yfir þriggja ára tímabil. Huang sagði í morgun að hún myndi leiða til grundvallarbreytinga á einkatölvum og notkun þeirra. RTX Spark er hönnuð fyrir bæði borðtölvur og fartölvur og ætlar Nvidia að vinna með Dell, Lenovo, Microsoft, HP, Asus og MSI að gerð fartölva sem nota flöguna, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Hún er ekki eingöngu ætluð gervigreind heldur mun hún einnig vera góð fyrir leikjaspilun og myndvinnslu, svo eitthvað sé nefnt. Forsvarsmenn Nvidia segja RTX Spark skilvirkustu tölvuflögu heims. Í samtali við Reuters segir sérfræðingur að mögulega sé um vendipunkt í tækni að ræða og að áhrifin gætu verið í takt við tilkomu iPhone-símans á sínum tíma. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar um RTX Spark hér á vef Nvidia. Nvidia er langverðmætasta fyrirtæki heims. Það framleiðir þrívíddarkort og aðra íhluti í PC-tölvur og gagnaver en þróun gervigreindar og mállíkana hefur haft gífurleg áhrif á fyrirtækið. Tölvubúnaður Nvidia þykir sérstaklega hentugur gagnaverum sem notuð eru til að keyra mállíkön heimsins. Á síðasta uppgjörsfjórðungi Nvidia hagnaðist fyrirtækið um 7,2 billjónir króna (tólf núll) en til samanburðar má benda á að verg landsframleiðsla Íslands í fyrra var tæpar fimm billjónir.
Gervigreind Tækni Microsoft Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira