Innlent

Truflanir á island.is

Samúel Karl Ólason skrifar
Notendur ramba víða á undirsíðum island.is á þessa meldingu.
Notendur ramba víða á undirsíðum island.is á þessa meldingu.

Truflanir eru á vefnum island.is og reynist mörgum erfitt að komast inn á vefinn. Umfang truflananna liggur ekki fyrir.

Efst á síðunni, takist að opna hana, kemur upp gulur borði um að truflanir séu á þjónustu vefsins og að unnið sé að viðgerð. Sá borði sést þó ekki hjá öllum sem heimsækja vefinn.

Island.is á er eins konar þjónustumiðstöð fyrir landið þar sem hægt er að nálgast alls konar opinbera þjónustu og upplýsingar.

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi í mars út álit þar sem yfirvöldum á Íslandi var gert að breyta island.is. Var það sökum þess að vefsíðan uppfyllti ekki EES-reglur. Yfirvöldum voru gefnir tveir mánuðir til að bæta vefinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×