Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. maí 2026 12:31 Lánið hefur leikið við kylfinga á Leirdalsvelli í upphafi sumars. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Golfsumarið er hafið og íþróttin á hámarki vinsælda sinna á Íslandi. Í upphafi sumars hafa kylfingar á Leirdalsvelli Kópavogs og Garðabæjar verið alveg einstaklega hittnir.
Leirdalsvöllur var opnaður í síðustu viku og fyrstu vikuna fóru fjórir kylfingar holu í höggi. Annað eins er fáheyrt á svo skömmum tíma en Leirdalsvöllur er sagður „krefjandi fyrir golfara á öllum stigum íþróttarinnar.“ Völlurinn liggur frá Vetrarmýrinni í Garðabæ og upp í Leirdalinn í Kópavogi og aftur til baka. Gunnar Valdimar Johnsen (yngri) var fyrstur í sumar til að fara holu í höggi, á 13. holu Leirdalsvallar þann 22. maí. „Afi hans og nafni fer reglulega holu í höggi og hefur eflaust verið búinn að skóla juniorinn til hvernig ætti að ná þessu,“ segir í tilkynningu GKG. Jóhannes Karl Bárðarson lék afrek Gunnars eftir síðastliðinn mánudag, 25. maí, þegar hann fór holu í höggi á 13. holu Leirdalsvallar. Nei, fór hann ekki bara yfir? Petrún Jónsdóttir fór svo 4. holuna í Leirdalnum í einu höggi degi síðar, þriðjudaginn 26. maí. Petrún var að spila af bláum teigum og sýndi mælingin 120 metra. "Ég sló með 8 járni beint á pinna boltinn lenti ca 3 metra frá rúllaði bein ofaní. Hilmar Sigurjónsson var að spila með mér og hann byrjar “hann fór ofaní, hann fór ofaní” og faðmar mig ég salla róleg nei, fór hann ekki bara yfir? Ég sé ekkert sérlega vel frá mér, hann var ný búinn að gera grín af mér að ég horfði aldrei á eftir boltanum, ég var bara að ganga frá kylfunni þegar boltinn rúllaði ofaní," segir Petrún við GKG. Allir í kollhnís Jóhanni til heiðurs Jóhann Örn Sveinbjörnsson fór síðan holu í höggi á 11. holu í Leirdalnum í fyrradag, miðvikudaginn 27. maí. „Hann var nýbúinn að vara meðspilara sinn á 9. holu að nota alvöru bolta ef draumahöggið kæmi, "væri leiðinlegt að ramma inn Kirkland bolta". Að sögn meðspilara Jóhanns sló hann draumahöggið með Gap wedge, boltinn tók stefnuna beint á pinna og vitir menn eitt, tvö skopp og beint ofan í holu við mikin fögnuð viðstaddra. Meðspilarar tóku einn góðan kollhnís til heiðurs Jóhanni! Stórglæsilegt högg og í annað skiptið á golfferlinum sem Jóhann Örn fer holu í höggi,“ segir í tilkynningu GKG.
Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Dagskráin: Suðurnesjaslagur og Körfuboltakvöld „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu jafntefli í Skógarselinu Sjá meira