Sport

Heimir þurfti að hreinsa tennis­bolta af vellinum: „Þetta er ó­sann­gjarnt“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Heimir Hallgrímsson er í erfiðri stöðu eftir að Írland dróst gegn Ísrael í Þjóðadeildinni.
Heimir Hallgrímsson er í erfiðri stöðu eftir að Írland dróst gegn Ísrael í Þjóðadeildinni. Charles McQuillan/Getty Images

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu þurftu tvisvar að stöðva leik gegn Katar í gærkvöldi til að hreinsa tennisbolta af vellinum. Áhorfendur voru að mótmæla fyrirhuguðum leik Írlands við Ísrael.

Írland lagði Katar að velli með 1-0 sigri í Dyflinn í gærkvöld. Nathan Collins skoraði eina mark leiksins á 5. mínútu en tvívegis eftir það, á 10. mínútu og 20. mínútu, þurfti að stöðva leikinn.

Talsverðan tíma tók í tvígang að hreinsa völlinn. Charles McQuillan/Getty Images

Áhorfendur köstuðu tennisboltum með palestínska fánanum inn á völlinn. Írland er meðal helstu bandamanna Palestínu en landsliðið á að mæta Ísrael í haust.

Leikurinn hefur vakið mikil viðbrögð í Írlandi, mótmæli hafa verið haldin fyrir utan þinghúsið og nú einnig á leik landsliðsins.

Boltarnir voru merktir með skilaboðum á palestínska fánanum. Stephen McCarthy/Sportsfile via Getty Images

Írska knattspyrnusambandið hefur farið fram á að Ísrael verði dæmt úr keppni, án árangurs. Leikurinn verður því spilaður, nema Írland kjósi að gefa hann frá sér með öllum refsingum sem því munu fylgja.

„Þetta er hindrun sem ég er ekki hrifinn af, þetta er ósanngjarnt fyrir leikmenn að vera settir í þessa stöðu og ósanngjarnt fyrir okkur. Mér finnst ekki sanngjarnt að við séum stimplaðir sem vondu kallarnir, við erum ekki að gera neitt af okkur,“ sagði Heimir þegar hann var spurður út í leikinn gegn Ísrael á blaðamannafundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×