Handbolti

Aron verður aðal­þjálfari FH en Sigur­steinn að­stoðar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Formleg hlutverkaskipti þjálfaranna urðu á blaðamannafundi FH.
Formleg hlutverkaskipti þjálfaranna urðu á blaðamannafundi FH. VÍSIR

Aron Pálmarsson verður aðalþjálfari karlaliðs FH í handbolta en Sigursteinn Arndal verður aðstoðarþjálfari.

Þessar breytingar tilkynnti FH á blaðamannafundi í Kaplakrika í hádeginu. Þar var einnig nýr styrktaraðili handknattleiksdeildar FH kynntur. SPAR verður framan á treyjum FH á næsta tímabili.

Sigursteinn Arndal hefur verið aðalþjálfari FH frá árinu 2019 og stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils árið 2024.

Sigursteinn Arndal verður aðstoðarþjálfari FH. vísir / anton

Þá var Aron leikmaður liðsins en skór hans fóru á hilluna vorið 2025. Síðasta haust sagðist Aron ekki hafa áhuga á þjálfun en sú skoðun hefur augljóslega breyst.

Nánar verður rætt við nýjan aðstoðarþjálfara FH í Sportpakka Sýnar.

Byrjaði sem aðstoðarþjálfari í febrúar

Aron kom inn í þjálfarateymi FH í febrúar síðastliðnum og tók að sér að stýra sóknarleik liðsins. Áður var hann sérstakur ráðgjafi handknattleiksdeildar félagsins. Það er staða sem hann tók við sumarið 2025.

Aron Pálmarsson verður aðalþjálfari FH. vísir / anton

Hann var áberandi í úrslitakeppninni þar sem hann stýrði flestum leikhléum liðsins og stillti sóknarleikinn af. FH tapaði fyrir Val í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.

FH varð í 2. sæti Olís deildar karla 2026 eftir tap gegn Val í úrslitaeinvíginu. vísir / anton

Lauk leikmannaferlinum í fyrra

Aron lauk ferli sínum sem leikmaður árið 2025 hjá Veszprem í Ungverjalandi eftir að hafa komið heim í FH og unnið Íslandsmeistaratitilinn vorið 2024.

Hann er einn allra besti handboltamaður sögunnar og raðaði inn titlum með Kiel, Barcelona, Veszprem og Álaborg í Danmörku.

Á ferlinum vann Aron þýsku úrvalsdeildina fimm sinnum, þá spænsku fjórum sinnum og þá ungversku tvisvar. Þá vann hann Meistaradeild Evrópu þrisvar, einu sinni með Barcelona og tvisvar með Kiel.

Aron skoraði 576 mörk í 148 landsleikjum fyrir Ísland og vann með liðinu brons á EM 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×