Viðskipti innlent

Verslunin Air lokar í Kringlunni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Rýmingarsala fer nú fram í versluninni í Kringlunni.
Rýmingarsala fer nú fram í versluninni í Kringlunni. Aðsend

Verslunin Air, sem sérhæfir sig í skóm og íþróttafatnaði frá Nike, mun loka í Kringlunni. S4S ehf., sem hefur rekið verslunina frá árinu 2017, mun enn reka slíkar verslanir í Smáralind og á Glerártorgi samkvæmt tilkynningu.

Þar kemur enn fremur fram að rýmingarsala sé nú í versluninni og að enn verði hægt að versla vörurnar á netinu.

„S4S þakkar viðskiptavinum sínum í Kringlunni kærlega fyrir viðskiptin og samfylgdina í gegnum árin og hlakkar til að taka áfram á móti þeim í Air í Smáralind og á Glerártorgi á Akureyri,“ segir í tilkynningunni.

S4S á og rekur fjölda verslana eins og Ellingsen, Ecco, Kaupfélagið, og Steinar Waage. Fyrirtækið tók svo nýlega við rekstri Lindex á Íslandi og opnaði stóra verslun í Kringlunni fyrr í mánuðinum.


Tengdar fréttir

Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni

Ný Lindex verslun opnar í Kringlunni á morgun en öllum Lindex verslunum landsins var lokað þegar fyrri rekstraraðili hætti með umboðið, sem fór til S4S. Nýja verslunin verður opnuð í plássinu þar sem Next var áður, við hlið H&M.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×