Viðskipti innlent

Skipu­lags­breytingar hjá Símanum

Árni Sæberg skrifar
María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans.
María Björk Einarsdóttir er forstjóri Símans. Síminn

Stjórn Símans hf. hefur samþykkt breytingar á skipuriti félagsins sem fyrirhugað er að taki gildi 1. júlí næstkomandi. Eins og áður hefur verið upplýst er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar með færslu fjarskipta- og miðlarekstrar í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf. frá og með 1. júlí næstkomandi.

Í tilkynningu þess efnis til Kauphallar segir að breytingarnar séu liður í því að skapa aukið svigrúm til vaxtar og þróunar samstæðunnar. Móðurfélagið, Síminn hf., sem fyrirhugað sé að muni bera heitið Ásar að undangengnum hluthafafundi, muni veita dótturfélögum skilgreinda stoðþjónustu og styðja við þróun samstæðunnar í heild.

María Björk Einarsdóttir verði áfram forstjóri móðurfélagsins og muni jafnframt gegna stöðu forstjóra Símans Rekstrar ehf.

Þá er tekið fram að umræddar breytingar muni ekki hafa nein áhrif á þjónustu Símans gagnvart viðskiptavinum.

Hjörtur, Logi og Ragna til Ása

Þrjú svið muni heyra undir móðurfélagið; fjármálasvið, upplýsingatækni og mannauður og rekstur.

Þrír framkvæmdastjórar muni starfa hjá móðurfélaginu. Hjörtur Þór Steindórsson muni áfram leiða fjármálasvið félagsins og Logi Karlsson stýra upplýsingatæknisviði. Ragna Margrét Norðdahl taki við sem framkvæmdastjóri mannauðs og rekstrar. Ragna Margrét hafi starfað hjá Símanum um árabil og gegnt lykilhlutverki í þróun mannauðsmála sem mannauðsstjóri félagsins auk þess að bera ábyrgð á fasteignarekstri, stefnuinnleiðingu og verkefnastýringu.

Stýra sömu sviðum áfram

Fjarskipta- og miðlarekstur samstæðunnar verði rekinn í óbreyttri mynd í dótturfélaginu Síminn Rekstur ehf.

Samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Símanum hf. muni Logi Karlsson gegna starfi framkvæmdastjóra tækniþróunar hjá Símanum Rekstri ehf. Berglind Björg Harðardóttir, Sæunn Björk Þorkelsdóttir og Birkir Ágústsson verði framkvæmdastjórar hjá Símanum Rekstri ehf. og stýra þar sömu sviðum og þau stýra í dag. Berglind verði framkvæmdastjóri einstaklingssviðs, Sæunn Björk framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og Birkir framkvæmdastjóri miðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×