Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Benedikta Sörensen skrifa 26. maí 2026 13:30 Á Ísafirði hvílir örvinglaður 16 ára drengur augun á sjóndeildarhringnum og íhugar að ganga í sjóinn. Í lófa hans er sími með tugum hótana frá glæpagengi sem er að fjárkúga hann með nektarmynd sem hann taldi sig vera að senda kærustu sinni. Í Helsinki þorir 12 ára drengur af sómölskum uppruna að skrá sig á Fortnite tölvuleikjamót því skipuleggjendurnir eyða umsvifalaust athugasemdum sem innihalda n-orðið og banna rasísk ummæli í garð leikmanna. Í Árósum gengur fjórtán ára stúlka, sem hefur ekki mætt í skólann í tæpt ár, óstyrkum fótum inn í tölvuleikjasal þar sem hún mun rjúfa félagslega einangrun sína með því að spila Super Mario undir handleiðslu uppeldisfræðinga við jafnaldra sína sem glíma líka við félagsfælni og skólaforðun. Á Akureyri stendur fimmtán ára drengur fyrir framan baðherbergisspegilinn með hamar í hendinni og kvíðahnút í maganum yfir því að þurfa að berja sig í andlitið til að breyta beinabyggingu sinni að ráðleggingu áhrifavalds á TikTok, sem heldur því fram að annars eigi hann ekki séns í stelpur. Í Gautaborg horfir tuttugu og þriggja ára kona með þroskaskerðingu á myndband um nettælingu og öðlast réttu orðin til að rjúfa þögnina um að hún hafi orðið fyrir samskonar ofbeldi. Í Kaupmannahöfn er 13 ára stúlka hætt að geta borðað og sofið af ótta við að vera útskúfað úr strangtrúaðri fjölskyldu sinni eftir að fölsuðu klámmyndbandi af henni var dreift á Snapchat. Í Stokkhólmi finnur átján ára drengur samfélag á netinu fyrir unga karlmenn þar sem tilfinningar eru ræddar á opinskáan og berskjaldaðan hátt sem gerir honum loksins kleift að leita sér aðstoðar við kvíða og þunglyndi. Í Tampere flykkjast unglingar í stafræna félagsmiðstöð á TikTok því þeim finnst þau öruggari og njóta sín betur í stafrænu rými þar sem viðvera fullorðinna æskulýðsstarfsmanna er jafn áþreifanleg og í félagsmiðstöð hverfisins. Allt eru þetta raunveruleg dæmi úr stafrænum veruleika barna og ungmenna á Norðurlöndunum. Flest okkar höfum heyrt eða þekkjum til slíkra dæma og höfum jafnvel fyllst vonleysi, því fæst okkar vitum hvernig nálgast má efni til að auðvelda okkur baráttuna við að hlúa að stafrænni velferð ungs fólks. Á föstudaginn ýtir Game Changer verkefnið nýjum gagnagrunni úr vör, hinum svokallaða Nordic Navigator, en hann veitir yfirlit yfir hátt í þrjúhundruð framúrskarandi úrræði frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Íslandi til að vinna gegn margs konar netvá, allt frá neteinelti til kynferðislegrar áreitni og áhættuhegðunar. Hvort sem um er að ræða ungmenni sem verða fyrir skaða, valda öðrum skaða eða hvort tveggja býður Nordic Navigator upp á úrræði til forvarna, íhlutunar og stuðnings í formi fræðsluefnis, leikja, stuttmynda, átaksverkefna, handbóka, hjálparlína, kennsluefnis, vefsíðna, stuðningsúrræða, hlaðvarpa, net-samfélaga og fleira. Öll eru hjartanlega velkomin í Next Level Gaming í Egilshöll á föstudag kl. 11:30 til að fá ókeypis sýnikennslu á Nordic Navigator, auk þess að hitta framúrskarandi ungt fólk sem brennur fyrir stafrænum réttindum. Þau sem komast ekki í Egilshöll geta fylgst með streymi hér. Þátttakendur verða leystir út með léttum hádegisverð, ráðstefnuglaðning – og vonandi ögn bjartari framtíð. Fyrir hönd Game Changer verkefnisins á Íslandi, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Benedikta Sörensen Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar