Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason, Birna Björnsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Hildur Harðardóttir, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, Silja Elvarsdóttir, Svandís Egilsdóttir, Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Brynhildur Davíðsdóttir og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifa 26. maí 2026 13:15 Vestræn samfélög hafa valið sér verga landsframleiðslu (VLF, e. GDP) eða aukningu hennar, hagvöxt, sem mælikvarða á heilbrigði og velgengni samfélaga. Verg landsframleiðsla mælir framleiðslu og neyslu samfélags og aukinn hagvöxtur hefur þótt eftirsótt markmið í sjálfu sér. Hagkerfi: Kerfi sem lýsir því hvernig samfélag framleiðir, dreifir og nýtir verðmæti, vörur og þjónustu Það sem við veljum að mæla hefur bein áhrif á það sem við gerum. Mælikvarðar eru ekki hlutlausir – þeir móta forgangsröðun í stefnumótun, stjórnsýslu og fjárfestingum. Þegar verg landsframleiðsla er ráðandi viðmið verður hún sjálfgefin skilgreining á árangri, jafnvel þótt hún segi lítið um heilsu fólks og félagsleg tengsl, húsnæðisöryggi eða ástand náttúrunnar en helling um vopnaframleiðslu og viðskiptaþvinganir, svo dæmi séu tekin. Það er því í besta falli einföldun – og í versta falli hættulegt – að mæla heilbrigði samfélaga eingöngu með þeim takmarkaða mælikvarða sem verg landsframleiðsla og hagvöxtur er. Velsæld: Ástand þar sem fólk býr við öryggi, heilsu og félagslega vellíðan og því líður vel Við fæðingu leitar hvítvoðungur fyrst alls tengsla við manneskjur í nærumhverfi sínu, jafnvel áður en hann gopar eftir næringu. Flestum uppalendum finnst skipta meira máli að börn upplifi öryggi og eigi vini en þau lesi hraðast eða skori flest mörk. Mörg þekkjum við þá tilfinningu að átta okkur á að fátt er mikilvægara en andleg og líkamleg heilsa. Minnihlutahópar þekkja á eigin skinni óþægindin og jafnvel óttann sem fylgir því þegar samfélagsumræða eða -aðstæður gera ekki ráð fyrir tilvist þeirra eða snýst gegn þeim. Velsældarhagkerfi: Kerfi til þess að verðmæti samfélagsins nýtist til að skapa öllu fólki gott líf Velsældarhagkerfi er hugmyndafræði sem hefur þróast hratt á undanförnum árum og byggir á þeirri sýn að hagkerfið eigi að þjóna fólki og Jörðinni – ekki öfugt. Markmið velsældarhugmyndafræðinnar er að gera hið ósýnilega sýnilegt og þróa viðmið sem styðja ákvarðanir í þágu núlifandi og komandi kynslóða, innan þolmarka Jarðar. Hugmyndin um velsældarhagkerfi fjallar því ekki aðeins um að bæta nýjum mælikvörðum við mælingar okkar á heilbrigði og velgengni samfélagsins, heldur spyr hún okkur líka áleitinna spurninga um hvernig samfélag við viljum skapa og tilheyra? Hver og hvað ákveður hvað telst árangur? Hvaða gildi endurspeglast í ákvörðunum okkar? Og hverjir bera kostnaðinn sem vissulega fellur til, en mælist ekki með hefðbundnum mælikvörðum? Hugmyndafræði velsældarhagkerfis hafnar því að takmarkaðir mælikvarðar á borð við framleiðslu og neyslu segi alla söguna; hún víkkar mælikvarðana út svo þeir nái betur utan um hvernig fólki raunverulega líður, og tekur tengsl okkar við okkur sjálf og fólkið í kringum okkur; heilsu, sjálfbærni og ástand náttúrunnar með í reikninginn í mati á samfélaginu. Við þurfum velsældarhagkerfi Árið 2018 höfðu forsætisráðherrarnir Jacinda Ardern (Nýja Sjáland), Katrín Jakobsdóttir og Nicola Sturgeon (Skotland) forgöngu um stofnun samstarfs ríkisstjórna um velsældarhagkerfi, Wellbeing Economy Governments (WEGo). Þar eru gildi á borð við umhyggju, traust, samheldni, jafnrétti og ábyrgð höfð að leiðarljósi. Hugmyndafræði velsældarhagkerfis hefur á fáum árum þróast úr jaðarumræðu yfir í alþjóðlega stefnumótun og í Wales eru sjónarmið velsældarhugmyndafræðinnar viðurkenndur og formlegur hluti af opinberri ákvarðanatöku. Samhliða hefur alþjóðlega hreyfingin Wellbeing Economy Alliance (WEAll) vaxið hratt og starfar nú í 17 löndum. Eftir fjölmennan fund í Norræna húsinu í lok janúar hefur hópur fólks hist reglulega til undirbúnings stofnunar Íslandsdeildar WEAll. Hópurinn hefur einnig haft samráð við WEAll miðstöðvar í nokkrum löndum, svo sem Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Skotlandi, Írlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Íslenskur vettvangur hreyfingarinnar er nú að verða að veruleika og við hvetjum öll sem hafa áhuga til að mæta á stofnfund Miðstöðvar velsældarhagkerfis á Íslandi (Wellbeing Economy Alliance Hub Iceland) sem fram fer í Norræna húsinu, miðvikudaginn 27. maí kl. 17:00. Fyrir hönd undirbúningshóps um stofnun Miðstöðvar um velsældarhagkerfi, Ásgeir Brynjar Torfason Birna Björnsdóttir Brynhildur Davíðsdóttir Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Guðmundur Steingrímsson Hildur Harðardóttir Kristín Vala Ragnarsdóttir Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir Silja Elvarsdóttir Svandís Egilsdóttir Tinna Jóhannsdóttir Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar