Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Kjartan Kjartansson skrifar 26. maí 2026 10:52 Starfsmenn í Rotterdamhöfn í smitvarnarbúningum vinna að sótthreinsun MV Hondius eftir að hantaveira greindist á meðal farþega í síðasta leiðangri skipsins. Vísir/EPA Útgerð hollenska skemmtiferðaskipsins Hondius hefur afbókað fyrirhugaða viðkomu þess á Íslandi í vikunni en enn stendur til að það komi hingað síðar í sumar. Þrír farþegar úr síðustu ferð skipsins eru látnir af völdum hantaveiru.
Til stóð að Hondius kæmi til hafnar í Keflavík á föstudag og á Akureyri í næstu viku. Hafnarstjórar í Keflavík og á Akureyri staðfesta hins vegar að skipið hafi verið afbókað. Eftir að farþegum skipsins var komið frá borði á Kanaríeyjum fyrr í þessum mánuði var því siglt til Rotterdamhafnar til sótthreinsunar. Þangað kom það í byrjun síðustu viku. Þá sagði útgerðarfélagið að það sæi ekki fyrir sér neinar breytingar á siglingaráætlun þess. Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, og Pétur Ólafsson, hafnarstjóri Akureyrarhafnar, staðfesta hins vegar báðir við Vísi að ekkert verði af komu hollenska skipsins þangað nú í maí og júní. Skipið hafi afbókað sig. Pétur segir að ferð skipsins til Íslands í ágúst hafi ekki verið afbókuð enn sem komið er. Samkvæmt vefsíðu Oceanwide Expeditions, útgerðarfélags Hondius, á skipið að enda fyrirhugaða almyrkaferð sína um Svalbarða og Grænland á Akureyri 15. ágúst. Hantaveira er almennt ekki talin smitast á milli manna. Argentínsk yfirvöld rannsaka nú hvort að farþegar um borð í Hondius kunni að hafa smitast af nagdýrum á ruslahaugi sem er vinsæll á meðal fuglaáhugafólks í Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þaðan sem skipið lagði upp í apríl.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Holland Skemmtiferðaskip á Íslandi Ferðaþjónusta Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira