Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Kristján Már Unnarsson skrifar 25. maí 2026 09:22 Fyrsta Boeing 757-200 þotan kom út úr samsetningarverksmiðju Boeing í Renton í Seattle þann 13. janúar 1982. Fyrsta reynsluflugið var 19. febrúar 1982. Boeing Boeing-flugvélaframleiðandinn hefur að nýju hafið undirbúning að smíði nýrrar tegundar farþegaþotu sem ætlað er að brúa bilið í stærðarflokki flugvéla á milli 737 MAX og 787 Dreamliner. Miðað við lýsingar virðist Boeing stefna að smíði flugvélar sem svipa mun til 757-þotunnar í stærð, útliti og flugdrægi.
Allt frá því smíði 757 var hætt árið 2004 hefur flugheimurinn beðið eftir því að Boeing kynnti arftaka hennar. Fyrirtækið var lengi með á teikniborðinu verkefni sem kallaðist NMA, eða New Midsize Aircraft, flugvélar sem talið var að fengi heitið Boeing 797. Sú þota átti að verða lítil breiðþota með sæti fyrir 220 til 270 farþega, og myndi þannig einnig geta leyst af 767-þotuna. Litla breiðþotan Boeing 797 hefur aldrei komist af teikniborðinu. Hún átti að verða arftaki 757-þotunnar hjá Boeing. Erfiðleikar sem fylgdu mannskæðum flugslysum 737 MAX og kyrrsetningu þeirra urðu til þess að Boeing setti þróun þessarar flugvélar á hilluna. Covid-heimsfaraldurinn bættist svo ofan á. Boeing virðist núna hafa fallið frá því að smíða litla breiðþotu. Núna er stefnt á hefðbundna mjóþotu, á flugvél sem rúmi 200 til 250 farþega með einum farrýmisgangi í miðju. Hún verði þannig örlítið stærri en 737 Max 10, fremur á stærð við 757-300. Með enn sparneytnari hreyflum og breyttri vænghönnun er henni ætlað að skáka keppinautum í hagkvæmni og lágu kolefnisspori. TF-FIH, fyrsta Boeing 757-þota Icelandair, í smíðum í verksmiðju Boeing í Seattle snemma árs 1990.Icelandair/Boeing Wall Street Journal var fyrst til að skýra frá verkefninu í haust. Þar var talað um að flugvélin ætti að leysa 737 MAX-þoturnar af hólmi. Markmiðið væri að ná til baka markaðshlutdeild sem Boeing hefði verið að tapa til Airbus í þessari stærð flugvéla. Boeing hélt þó spilunum þétt að sér, staðfesti ekkert, og reyndi að gera sem minnst úr fréttinni. Frétt Bloomberg fyrr í þessum mánuði hefur hleypt nýju lífi í umræðuna. Fréttaveitan greindi frá því að Boeing hyggðist með flugvélinni ná fótfestu á ný á markaði fyrir stærstu gerðir mjórra farþegaþotna þar sem Airbus hefur náð yfirburðastöðu með A321 neo og A321 xlr-gerðunum. Samkvæmt Bloomberg er markmið Boeing að nýja þotan komist í notkun flugfélaga um miðjan næsta áratug. Icelandair valdi Airbus A321 þar sem Boeing hafði engan sambærilegan valkost að bjóða til að leysa af 757-þoturnar.Icelandair/Airbus Í frétt MSN fyrir helgi segir að fram á seinni hluta síðasta árs hafi hugmynd Boeing verið sú að þróa arftaka 737 MAX-vélanna. Núna hafi orðið sú áherslubreyting að horfa til stærri flugvélar í líkingu við 757. Á spjallþráðum alþjóðlegra flugfréttamiðla þykir mörgum liggja beinast við að nýja þotan fái einnig heitið Boeing 757 en með viðbót og nefna til dæmis 757NG, 757 MAX eða 757X. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn um 757-þotuna er varpað fram þeirri spurningu hvort það hafi verið mistök hjá Boeing að hætta framleiðslu 757 í stað þess að endurbæta flugvélina. Um aðdraganda þess að Icelandair valdi 757-þotuna má fræðast um hér:
Boeing Flug Icelandair Flugþjóðin Tengdar fréttir Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Boeing-verksmiðjurnar hættu smíði 757-þotunnar árið 2004, þeirrar flugvélartegundar sem byggði upp Icelandair. Boeing hefur til þessa ekki getað boðið flugfélögum upp á annan valkost sem getur algerlega komið í staðinn fyrir 757-vélina. 30. mars 2025 14:30 Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Sjá meira
Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Boeing-verksmiðjurnar hættu smíði 757-þotunnar árið 2004, þeirrar flugvélartegundar sem byggði upp Icelandair. Boeing hefur til þessa ekki getað boðið flugfélögum upp á annan valkost sem getur algerlega komið í staðinn fyrir 757-vélina. 30. mars 2025 14:30