Formúla 1

Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu

Andri Broddason skrifar
Antonelli er kominn í góða stöðu í heimsmeistaramóti Formúlu 1
Antonelli er kominn í góða stöðu í heimsmeistaramóti Formúlu 1 Bryn Lennon - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

Kimi Antonelli sigraði Kanada kappaksturinn sem var haldinn í Kanada. Hann stækkar forskot sitt á heimsmeistaramóti ökumanna um 25 stig.

Ítalinn ungi Kimi Antonelli sigraði fjórðu keppni sína í röð á tímabilinu og er kominn með gott forskot í heimsmeistaramótinu. Aðalkeppinautur hans í heimsmeistarakeppninni, Bíll Mercedes liðsfélaga hans og aðalkeppinautar, George Russell, bilaði eftir aðeins 30 hringi keyrða.

Það voru erfiðar aðstæður í Kanada í dag þar sem það var mikill kuldi og erfitt að halda hita í dekkjum. McLaren ökumennirnir Lando Norris og Oscar Piastri sem byrjuðu keppnina í þriðja og fjórða sæti köstuðu keppninni frá sér í byrjun með því að byrja keppnina á grænmerktu vætudekkjunum.

Kappakstursbrautin var blaut þegar keppni hófst en var fljót að þorna og ljóst að of þurrt var fyrir vætudekkin og þurftu báðir að skipta um dekk snemma.

þetta var bara byrjunin af slæmum degi McLaren þar sem gírkassi Norris bilaði aðeins tíu hringjum eftir að bíll Russell bilaði. Piastri lenti einnig í veseni á meðan á keppninni stóð og kláraði keppnina stigalaus í ellefta sæti.

Gamlir erkifjendur fengu að spreyta sig aftur

Eftir að Russell og Norris duttu úr keppninni var hörð barátta milli Lewis Hamilton og Max Verstappen um annað sætið í keppninni. Hamilton náði að taka framúr Verstappen þegar aðeins sex hringir voru eftir af keppninni. Hann náði þá öðru sætinu og Verstappen þurfti að sætta sig við það þriðja.

Það er kannski erfitt að trúa því en þetta er fyrsti verðlaunapall Verstappen á tímabilinu.

Næsta keppni fer fram í Mónakó 5. - 7. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×