Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2026 13:56 Joao Palhinha skoraði óhemju dýrmætt mark fyrir Tottenham í dag og kom liðinu í 1-0 gegn Everton. Getty/Richard Heathcote Tottenham tryggði sér áframhaldandi veru í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir taugatrekkjandi lokaumferð. West Ham vann Leeds en þurfti á hjálp frá Everton að halda sem mistókst að vinna Tottenham. Lokaumferðin í dag: Brighton - Man. Utd, 0-3 (Patrick Dorgu 34., Bryan Mbeumo 44., Bruno Fernandes 47.) Burnley - Wolves, 1-1 (Zian Flemming 47. - Adam Armstrong 5.) Crystal Palace - Arsenal, 1-2 (Jean Philippe Mateta 89. - Gabriel Jesus 42., Noni Madueke 48.) Fulham - Newcastle, 2-0 (Issa Diop 20., Tom Cairney 80.) Liverpool - Brentford, 1-1 (Curtis Jones 58. - Kevin Schade 64.) Man. City - Aston Villa, 1-2 (Antoine Semenyo 23. - Ollie Watkins 47., 63.) Forest - Bournemouth, 1-1 (Morgan Gibbs-White 34. - Marcus Tavernier 54.) Sunderland - Chelsea, 2-1 (Trai Hume 25., Malo Gusto 50. (sjálfsmark) - Cole Palmer 56. Rautt spjald: Wesley Fofana 62.) Tottenham - Everton, 1-0 (Joao Palhinha 43.) West Ham - Leeds, 3-0 (Valentín Castellanos 67., Jarrod Bowen 79., Callum Wilson 90. +4) West Ham gerði sitt og vann góðan 3-0 sigur gegn Leeds en hafði tapað síðustu þremur leikjum í röð og endaði tveimur stigum á eftir Tottenham. Tottenham vann Everton 1-0, með marki frá Joao Palhinha í lok fyrri hálfleiks, og hefði haldið sér uppi jafnvel þó að Everton næði að jafna. Aðeins ef Tottenham hefði tapað hefði West Ham haldið sér uppi en nú er ljóst að Hamrarnir fylgja Burnley og Wolves niður í B-deildina. Standings provided by Sofascore Liverpool í Meistaradeildina en ekki sjötta liðið Liverpool tryggði sér endanlega sæti í Meistaradeild Evrópu með því að enda í 5. sæti, þrátt fyrir 1-1 jafntefli við Brentford þar sem Mohamed Salah lagði upp mark í kveðjuleik sínum og Andy Robertson, fyrir Curtis Jones. Mohamed Salah spilaði sinn síðasta leik fyrir Liverpool í dag og faðmaði Arne Slot örstutt á leið af velli.Getty/Jack Thomas Evrópudeildarmeistarar Aston Villa tryggðu sér 4. sæti með 2-1 útisigri gegn Manchester City í kveðjuleik Pep Guardiola, Bernardo Silva og John Stones, þar sem Ollie Watkins skoraði tvennu. Evrópukvöld hjá Brighton og Sunderland Bournemouth og Sunderland fara í Evrópudeildina sem liðin í 6. og 7. sæti en Sunderland kom sér þangað með frábærum 2-1 sigri gegn Chelsea í dag. Bournemouth hefði komist í Meistaradeildina ef Liverpool hefði náð 4. sætinu af Villa. Brighton komst svo í umspil Sambandsdeildarinnar þrátt fyrir 3-0 tap á heimavelli gegn Manchester United þar sem Patrick Dorgu, Bryan Mbeumo og Bruno Fernandes skoruðu mörkin og Fernandes bætti mögulega stoðsendingametið á einni leiktíð í deildinni. Bein textalýsing frá lokaumferðinni var hér að neðan.
Lokaumferðin í dag: Brighton - Man. Utd, 0-3 (Patrick Dorgu 34., Bryan Mbeumo 44., Bruno Fernandes 47.) Burnley - Wolves, 1-1 (Zian Flemming 47. - Adam Armstrong 5.) Crystal Palace - Arsenal, 1-2 (Jean Philippe Mateta 89. - Gabriel Jesus 42., Noni Madueke 48.) Fulham - Newcastle, 2-0 (Issa Diop 20., Tom Cairney 80.) Liverpool - Brentford, 1-1 (Curtis Jones 58. - Kevin Schade 64.) Man. City - Aston Villa, 1-2 (Antoine Semenyo 23. - Ollie Watkins 47., 63.) Forest - Bournemouth, 1-1 (Morgan Gibbs-White 34. - Marcus Tavernier 54.) Sunderland - Chelsea, 2-1 (Trai Hume 25., Malo Gusto 50. (sjálfsmark) - Cole Palmer 56. Rautt spjald: Wesley Fofana 62.) Tottenham - Everton, 1-0 (Joao Palhinha 43.) West Ham - Leeds, 3-0 (Valentín Castellanos 67., Jarrod Bowen 79., Callum Wilson 90. +4)
Enski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Sjá meira