Grafinn í sand í sólarhring Sigurgeir Þorkelsson skrifar 23. maí 2026 16:22 Axel Máni eyddi sólarhring niðurgrafinn í sand í Nauthólsvík. Vísir „Ég vildi sýna mér að maður getur allt sem maður ætlar sér,“ segir grallaraspóinn Axel Máni sem í gær gróf sig í holu í Nauthólsvík. „Ég vil peppa aðra. Farið út og gerið það sem þið viljið, það skiptir ekki máli þótt það sé skrítið eða furðulegt. Þú getur það sem þú ætlar þér, sama hvað það er. Ekki vera að pæla í hvað öðrum finnst.“
Eyðir sólarhring í holunni Axel Máni ætlar að dúsa í sandholunni í sólarhring. „Ég á þrjá tæpa klukkutíma eftir eins og staðan er núna, ég er búinn með tuttugu og einn.“ Gestkvæmt hefur verið hjá Axel. Vistin í votri holunni er ekki góð. „Mér líður eins og ég sé grafinn í steypu. Það kom rigning í gær svo sandurinn er grjótharður og hefur mótað sig að líkamanum. Ég á erfitt með að anda.“ Axel segir þó engar líkur á öðru en hann haldi út sólarhringinn. Pottverjar láta sér nægja að fylgjast með frá hliðarlínunni.Vísir Undirbúningstímabilið var snarpt Axel tók sér ekki langan tíma í undirbúning. „Þú þarft eiginlega bara að kýla á þetta. Þessi hugmynd kom upp á mánudegi og er framkvæmd á föstudegi, svo þetta er tæp vika sem ég fékk í undirbúning,“ segir Axel Máni. „Ég tók nokkrar góðar æfingar í sánunni og lokaði mig inni í herbergi og svona. En þú þarft bara að fara þetta á hnefanum í rauninni.“ Holu-Axel vekur athygli. Vísir Nóttin var erfið Axel Máni segist klæddur í jogging buxur, innanundirbuxur, íþróttaskó, bol, úlpu og með vettlinga. Axel segist þó ekki vera kalt, en að í nótt hafi önnur hlið hafi verið uppi á teningnum. „Mér var skítkalt í nótt.“ „Ég reyndi að sofna milli tvö og fjögur. Ég sofnaði ekki almennilega fyrr en klukkan sex. Það er fólk að koma hérna á klukkutíma fresti alla nóttina. Það var í raun ekki mikill friður. Síðan barst tónlist frá partíi hérna við hliðina á, ég fékk að heyra smá tónlist og það hjálpaði mér að slaka á. Það var þægilegt.“ „Hefði ég átt að snúa í átt að sjónum?“ gæti Axel verið að hugsa hér. Vísir Uppátækið vekur athygli Eins og Axel greinir frá hefur uppátækið vakið athygli og hann fær stöðugar heimsóknir. „Já, ég hef fengið eftirminnilegar heimsóknir. Fyrsta klukkutímann hitti ég Birni, hann var hérna. Óli kom líka og kíkti á mig, hann hellti yfir mig kristal. Síðan komu tveir öryggisverðir sem komu og héldu mér félagsskap, Leifur og Heimir. Það eru þeir sem standa mest upp úr, alvöru snillingar.“ Heimsóknirnar eru sem betur fer flestar frá styðjandi aðilum. „Ég finn mest stuðning, þó einhverjir séu með einhver kjánalæti.“ Nauthólsvíkin, skófla, léttar veitingar og beint streymi á Tik Tok. Hvað meira þarf maður?Vísir Streymir öllu á Tik Tok Sér til hliðar er Axel með síma sem sendir uppátækið út í beinu streymi á Tik Tok, próteindrykk og íþróttadrykk með rafvökum (e. Electrolytes), sem gestir og gangandi aðstoða hann með. En hvernig leysir maður það að komast ekki á salernið í sólarhring? „Heyrðu, kallinn er í bleyju. Það er bara þannig.“ Axel Máni verður eflaust frelsinu feginn þegar hann losnar úr holunni. Hvað er það fyrsta sem hann mun gera? „Teygja úr mér og negla mér beint út í sjó,“ segir Axel, „og síðan beint heim að grilla mér steik.“ Axel segist vilja koma því til skila við getum öll elt drauma okkar og þurfum ekki að óttast álit annarra. Vísir
TikTok Reykjavík Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira