City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. maí 2026 10:29 Guardiola kveður með FA-bikartitli. Hann vann 20 titla á 10 árum í Manchester. Shaun Brooks - CameraSport via Getty Images Josep Guadiola mun stýra Manchester City í hinsta sinn á sunnudaginn kemur þegar liðið mætir Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta staðfesti félagið í tilkynningu í morgun.
Brotthvarf Guardiola lak út í vikunni en hann átti ár eftir af samningi sínum við Manchester City. Hann hefur ákveðið að hætta strax í sumar eftir tíu ára veru í Manchester-borg. Á árunum tíu hefur Guardiola unnið 20 titla og bindur þar með enda á eina sigursælustu stjóratíð í sögu enska fótboltans. Guardiola slítur sig þó ekki alfarið frá City þar sem hann verður áfram í hlutastarfi hjá City Group, eignarhaldsfélagi Manchester City, sem alþjóðlegur sendiherra. „Dömur mínar og herrar, takk fyrir að treysta mér,“ sagði Guardiola í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum City. „Takk fyrir að hvetja mig áfram. Takk fyrir að elska mig.“ "What a time we have had together." 🩵 pic.twitter.com/WpkFecBYT4— Manchester City (@ManCity) May 22, 2026 „Tony Walsh sagði í ógleymanlegu ljóði sínu: „Þetta er staðurinn. Fyrirgefðu, Tony: þetta er minn staður.“ „Noel (Gallagher) ... ég hafði rétt fyrir mér.“ „Þetta hefur verið svo f-ing gaman. Elska ykkur öll,“ segir Guardiola í myndbandinu. Fastlega er búist við því að Enzo Maresca, sem starfaði sem aðstoðarmaður Guardiola hjá City tímabilið 2022-23, verði ráðinn í hans stað í sumar. Maresca var síðast þjálfari Chelsea en var rekinn eftir ósætti við stjórnendur félagsins í upphafi árs. Maresca var aðstoðarþjálfari Guardiola leiktíðina 2022-23 þegar City vann þrennuna. Hann tekur líklega við liðinu í sumar.Tom Flathers/Manchester City FC via Getty Images Einn sá allra sigursælasti Guardiola tók við Manchester City sumarið 2016 en félagið hafði þá orðið enskur meistari fjórum sinnum í sögunni. Þeir ensku meistaratitlar eru nú tíu talsins við brotthvarf hans. Liðið varð þá bikarmeistari þrisvar undir hans stjórn, deildabikarmeistari sex sinnum og vann Meistaradeild Evrópu árið 2023. Það tímabil, 2022-23 varð Manchester City fyrsta enska félagið til að vinna þrennuna (deild, bikar og Meistaradeild) frá því Manchester United gerði það árið 1999. Liðið vann þá þrennu enskra titla; deild, bikar og deildabikar, tímabilið 2018-19. Titlar Guardiola hjá City: Enska úrvalsdeildin (6): 2017-18, 2018-19, 2020-21, 2021-22, 2022-23, 2023-24. FA-bikarinn (3): 2018-19, 2022-23, 2025-26. Enski deildabikarinn (5): 2017-18, 2018-19, 2019-20, 2020-21, 2025-26. Samfélagsskjöldurinn (3): 2018, 2019, 2024. Meistaradeild Evrópu (1): 2022-23. Ofurbikar Evrópu (1): 2023. HM félagsliða (1): 2023.
Manchester City Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira