Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Samúel Karl Ólason skrifar 21. maí 2026 20:35 Landsréttur neitaði að hækka bæturnar eins og maðurinn taldi sig eiga rétt á. Vísir/Viktor Freyr Íslenska ríkið þarf að greiða manni 5,7 milljónir króna, með dráttarvöxtum, af því að kona var ráðin í starf hjá opinberri stofnun en ekki hann. Hann var metinn hæfari en hún í starfið, meðal annars vegna betri menntunar og meiri þekkingar og reynslu á ótilgreindu sviði en konan þótti betri í mannlegum samskiptum.
Kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að honum hefði verið mismunað á grundvelli kyns við ráðninguna og að hann ætti rétt á bótum. Maðurinn fór fram á tæpar tíu milljónir, með vöxtum, fyrir laun en átti bara að fá 5,7 milljónir. Því áfrýjaði hann til Landsréttar. Hann vildi að launin ógreiddu miðuðu við tólf mánuði. Því var Landsréttur ósammála, þar sem starfið var tímabundið og óvíst væri hvort hann myndi vinna í stofnuninni ótilgreindu í heilt ár. Því voru upprunalegu skaðabæturnar staðfestar og fær hann því þessar 5,7 milljónir króna. Tók upp samtöl Lögmenn stofnunarinnar vísuðu í vörn þeirra til þess að í tölvupóstsamskiptum við starfsmenn hennar, eftir að konan var ráðin, hafi maðurinn sagst eiga upptökur af samtölum í tengslum við ráðninguna. Það bendi til þess að hann hafi hljóðritað samtöl við starfsmenn án þess að láta þá vita. Sem hafi verið í trássi við lög. Það segja lögmennirnir að bendi til þess að ályktun um hæfni mannsins í mannlegum samskiptum hafi verið málefnaleg. Landsréttur segir það þó í raun falla utan deilunnar. Það hafi ekki verið til skoðunar þegar konan var ráðin og komi heldur ekki ákvörðun um miskabætur við.
Dómsmál Jafnréttismál Stjórnsýsla Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira