Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Árni Sæberg skrifar 21. maí 2026 12:35 Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði. Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði útilokar samstarf við Framsóknarflokkinn eftir að oddviti flokksins tilkynnti þremur mínútum áður en fréttatilkynning um formlegar viðræður Framsóknar og Sjálfstæðisflokks barst að ekkert yrði af samstarfi Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um meirihlutasamstarf í bænum vegna alvarlegs trúnaðarbrests, að því er sagði í fréttatilkynningu frá bæjarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokks í morgun. Sléttum sólarhring áður en sú tilkynning barst tilkynntu Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar, og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, að formlegar viðræður um áframhaldandi meirihlutasamstarf væru hafnar. Kom verulega á óvart Hildur Rós Guðbjargardóttir, sem varð oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði eftir að Guðmundur Árni Stefánsson hætti í stjórnmálum, segir í samtali við Vísi að tilkynning Sjálfstæðismanna hafi komið henni verulega á óvart. Það hafi ekki verið eina tilkynningin sem komið hefur henni á óvart nýlega. „Við vorum í þreifingum með Framsókn og Viðreisn og vorum komin nokkuð langt í þeim þreifingum að ég hélt. Við vorum búin að hittast með öllum bæjarfulltrúum beggja og vorum beðin um að fara í baklandið og láta það virka og það ætti að fara í einhverja yfirlýsingu um að fara í meirihlutasamtal. Þetta var á þriðjudaginn og í gær og svo bara hringir Valdimar í mig þremur mínútum áður en að fréttatilkynning kemur um formlegar viðræður við Sjálfstæðisflokkinn og lætur mig vita að það verði ekkert af þessu.“ Framsókn, Samfylking og Viðreisn hafi verið búin að ræða sig niður á málefnagrunn og samþykkja skiptingu embætta milli flokkanna. „Ég hélt, og ég veit að Viðreisn gerði það líka, að það væru engar fyrirstöður, engar stórar hindranir eða neitt og mikill samhljómur, þannig að þetta kom mér mjög á óvart að fá símhringinguna þremur mínútum áður en að fréttatilkynningin barst.“ Gerði honum ljóst að hann fengi ekki annað tækifæri Mér heyrist á þér að það sé ekki mikil spenna fyrir því að fara aftur í viðræður við Framsókn, eða hvað? „Ég gerði honum [Valdimar] ljóst í símtali okkar að ef þetta myndi springa á miðju kjörtímabili, ég gerði náttúrulega ekki ráð fyrir því að þetta færi svona, að þá værum við ekki að fara að vinna saman. Það væri ekki traust og heilindi. Það kæmi ekki til greina. Það samstarf myndi aldrei ganga af því að það er búið að brjóta það traust áður en það byrjaði.“ Ljóst sé að Samfylking muni ekki vinna með Framsókn en engar þreifingar séu hafnar milli flokksins og annarra flokka. „Við tökum okkar ábyrgð sem kjörnir fulltrúar, það þarf náttúrulega að mynda einhvern starfhæfan meirihluta í bæjarfélaginu en við erum náttúrulega ekki eini valkosturinn, það eru fleiri valkostir og ég held að það þurfi ekkert að vera við sem erum fyrst þar, en að sjálfsögðu þá tökum við ábyrgð á stöðunni og reynum að gera gott úr henni ef til okkar er leitað.“ ‹ › Erfið staða Nú er ljóst að Framsókn mun hvorki geta myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokki né Samfylkingu og því er eini mögulegi meirihluti Framsóknar með Viðreisn og Miðflokki. Sjálfstæðisflokkur gæti myndað meirihluta með Samfylkingu og annað hvort Viðreisn eða Miðflokki eða Viðreisn og Miðflokki.
Hafnarfjörður Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira