Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2026 09:30 Arsenal-menn fögnuðu langþráðum titli af innlifun í alla nótt. Skjáskot/Instagram Leikmenn Arsenal fögnuðu Englandsmeistaratitlinum langt fram á nótt og voru raunar enn að fagna þegar þeir yfirgáfu Emirates-leikvanginn loks klukkan 5 í morgun, eftir langa bið eftir titlinum stóra.
Leikmenn og hópur af starfsliði Arsenal hafði safnast saman á æfingasvæði félagsins til að fylgjast með leik Manchester City og Bournemouth í gærkvöld, vitandi það að ef City tækist ekki að vinna þá myndi 22 ára bið Arsenal eftir Englandsmeistaratitli ljúka. Erling Haaland jafnaði metin í 1-1 í uppbótartíma en það dugði ekki fyrir City og Arsenal-menn um allan heim ærðust af fögnuði, ekki síst leikmennirnir sjálfir eins og sjá má. Stjörnur Arsenal-liðsins leyfðu svo stuðningsmönnum að fá smá innsýn í fagnaðarlætin með myndum og myndböndum á samfélagsmiðlum. Jurrien Timber og Bukayo Saka sýndu meðal annars eins konar „bikarskuggamynd“ sem Mikel Arteta lét gera á vegg á æfingasvæðinu, til að minna menn sífellt á að þá vantaði Englandsmeistarabikarinn. Nú er bikarinn á leiðinni því Arsenal fær hann afhentan eftir leikinn við Crystal Palace á sunnudaginn. Saka nýtti tækifæri til að skjóta aðeins á andstæðinga Arsenal, nú þegar þessi 24 ára uppaldi Arsenal-maður er orðinn Englandsmeistari í fyrsta sinn. View this post on Instagram A post shared by Jurrien Timber (@jurrientimber) „Leyfið mér að segja eitt. Í 22 ár voru þeir að hlæja og gera grín. Þeir hlæja ekki lengur. Hann [bikarinn] mun skína skært,“ sagði Saka glaðbeittur. Saka tók líka upp á myndband þegar hinn 19 ára Myles Lewis-Skelly grínaðist með það að ýmsir hefðu ítrekað haldið því fram að Arsenal-menn klúðruðu alltaf málum á endanum, þó að þeir kæmust stundum á toppinn fyrr á leiktíðinni. „Þeir segja að við flöskum alltaf á þessu! En núna höldum við á flöskunni,“ sagði Lewis-Skelly og veifaði kampavínsflösku sigursæll. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom) Fagnaðarlætin héldu áfram fram yfir sólarupprás en þá hafði partýið færst yfir á Emirates-leikvanginn. Nokkrir stuðningsmenn náðu þá að sjá hetjurnar sínar yfirgefa leikvanginn og fagna þeim en ljóst er að fagnaðarlætin halda áfram næstu daga. @moecapone300_ I CANT BELIEVE IT BUMPED INTO THE CHAMPIONS 5AM #premierleague #Fyp #arsenal ♬ original sound - Moecapone300 Arsenal á svo möguleika á að vinna magnaða tvennu því liðið mætir PSG í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu um aðra helgi, laugardaginn 30. maí.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira