Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 08:02 Kai Havertz fagnar sigurmarkinu mikilvæga gegn Burnley. Getty/Julian Finney Kai Havertz skoraði sigurmark Arsenal gegn Burnley í gærkvöld en þótti heppinn að fá ekki rautt spjald í þessum mikilvæga sigri. Helstu atvik leiksins má sjá á Vísi.
Arsenal hafði bankað fast á dyrnar og Leandro Trossard til að mynda átt skot í stöng, þegar Havertz skoraði svo eina mark leiksins með skalla á 37. mínútu, eftir hornspyrnu Bukayo Saka. Umdeilt atvik varð svo á 67. mínútu þegar Havertz fékk gult spjald fyrir að tækla Lesley Ugochukwu sem var á leið í átt frá honum. Dómarinn Paul Tierney lyfti strax gulu spjaldi og sú ákvörðun stóð þó að sjá mætti á sjónvarpsmyndum að Havertz færi með takkana á loft og aftan í kálfa Ugochukwu, þó ekki væri það af miklu afli. Klippa: Arsenal - Burnley 1-0 Mike Jackson, sem stýrir Burnley, sagðist ekki hrifinn af því að menn væru reknir af velli en að tæklingin hefði verið hættuleg og Havertz getað meitt Ugochukwu. Þess vegna hefði Havertz átt að fá rautt spjald. Gary Neville lýsti leiknum á Sky Sports og var einnig á því að rauða spjaldið hefði átt að fara á loft. „Ég tel að þetta sé rautt spjald. Það er ekki séns fyrir hann að ná til boltans, hann getur bara meitt leikmanninn þarna,“ sagði Neville. Sigurinn þýðir að Arsenal gæti orðið Englandsmeistari í kvöld. Sú verður raunin ef Manchester City tekst ekki að vinna Bournemouth. Ef City vinnur í kvöld ráðast úrslitin í lokaumferðinni þegar Arsenal sækir Crystal Palace heim en City mætir Aston Villa.
Enski boltinn Arsenal FC Burnley FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira