Mourinho tekur við Real Madrid en fyrirliðinn kveður Sindri Sverrisson skrifar 18. maí 2026 12:01 Jose Mourinho er sagður hafa samið um að stýra Real Madrid næstu tvö árin. Getty/Valger Gouveia José Mourinho snýr aftur til höfuðborgar Spánar og tekur við sem þjálfari Real Madrid í sumar, þrettán árum eftir að hann kvaddi félagið. Fyrirliði liðsins er hins vegar á förum.
Real Madrid tilkynnti í dag að fyrirliðinn Dani Carvajal færi frá félaginu eftir tímabilið. Hann kom fyrst til félagsins árið 2002 og hefur spilað 23 leiktíðir í búningi liðsins. Þó að hann hafi ekki fengið að lyfta bikar í ár þá hefur Carvajal unnið 27 titla með Real, þar af sex Evrópumeistaratitla og fjóra Spánarmeistaratitla en hann á að baki 450 leiki fyrir liðið. 𝐄𝐍𝐃 𝐎𝐅 𝐀𝐍 𝐄𝐑𝐀 💔After 23 seasons with Real Madrid, Dani Carvajal will leave as a free agent this summer 🥺He was the very last remaining player from Real Madrid's 2018 UCL final 😥🏆🏆🏆🏆🏆🏆 Champions League🏆🏆🏆🏆🏆 UEFA Super Cup🏆🏆🏆🏆🏆 FIFA Club World… pic.twitter.com/jRjImLV33R— 433 (@433) May 18, 2026 Carvajal verður kvaddur með viðhöfn á laugardagskvöld þegar leiktíðinni lýkur hjá Real með heimaleik við Sevilla. Fljótlega eftir þann leik er búist við að Mourinho verði kynntur sem nýr þjálfari Real. Félagið er sagt ætla að bíða vegna yfirvofandi forsetakosninga en fresturinn til að bjóða sig fram gegn Florentino Pérez rennur út á laugardaginn. Félagaskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano, og miðlar á borð við Sky Sports og fleiri, segja munnlegt samkomulag í höfn um samning til tveggja ára á milli Mourinho og Real. Þessi 63 ára Portúgali stýrði Real á árunum 2010-2013 en var að ljúka leiktíð með Benfica sem þrátt fyrir að tapa ekki leik í allan vetur endaði í 3. sæti portúgölsku úrvalsdeildarinnar, á eftir Sporting og meisturum Porto. Alvaro Arbeloa tók tímabundið við stjórn Real eftir að Xabi Alonso var rekinn í janúar en undir stjórn Arbeloa féll liðið úr leik í spænska bikarnum sem og í Meistaradeild Evrópu auk þess að enda í 2. sæti spænsku deildarinnar og horfa upp á Barcelona tryggja sér þar titilinn með sigri í El Clásico á dögunum. Mourinho gerði samning til tveggja ára við Benfica en er sagður vera með klásúlu í samningnum sem geri honum kleift að fara frá félaginu fyrir 2,6 milljónir punda. Hann er sagður taka með sér fjóra þjálfara frá Benfica til Madridar þar sem hann kemur til með að endurnýja kynnin við fyrrnefndan Pérez.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira