Max Verstappen rétt missti af sigri Andri Broddason skrifar 18. maí 2026 15:30 Svekkjandi fyrir Verstappen að ná ekki sigri Clive Rose - Formula 1/Formula 1 via Getty Images Max Verstappen rétt missti af sigri í 24 tíma Nürburgring keppninni eftir bilun í lok keppninnar sem var haldin í Þýskalandi í gær.
Ökuþórinn Max Verstappen keyrði í þrekaksturskeppninni 24h Nürburgring þar sem lið keyra sama bílinn í kringum Nürburgring-brautina stanslaust í tuttugu og fjóra tíma. Liðsfélagar Verstappen í keppninni voru Dani Jucadella, Jules Gounon og Lucas Auer. Verstappen sýndi strax góðan hraða og var liðið komið í góða stöðu í keppninni. Stærsta framlag Verstappen kom um klukkan hálf tvö um nótt á staðartíma þegar hann tók fram úr Maro Engel og náði forystunni. Þegar líða fór að morgni var liðið komið með gott forskot í fyrsta sætinu og virtist ætla að sigla sigrinum þægilega heim. Svo reyndist ekki því þegar þrjár klukkustundir voru eftir af keppninni byrjaði bíllinn að bila. Þegar komið var á þjónustusvæðið til að gera við bílinn kom í ljós að drifskaft bílsins var ónýtt og gátu þeir því ekki klárað keppnina. „Virkilega pirrandi og óheppilegur endir á keppninni,“ segir Max eftir að hann og liðsfélagar hans komust að því að þeir gætu ekki lokið keppni. View this post on Instagram A post shared by Max Verstappen (@maxverstappen1) Verstappen er sem stendur í sjöunda sæti í heimsmeistarakeppni ökuþóra í Formúlu 1 með aðeins 26 stig eftir fjórar keppnir. Ekki er víst að Verstappen haldi áfram keppni í Formúlu 1 þar sem hann er ósáttur við þróun bílanna og stöðu Red Bull liðsins. Næsta keppni er í Kanada 24. maí og þar er tækifæri fyrir Red Bull-liðið að bæta stöðu sína í heimsmeistarakeppni bílasmiða þar sem þeir standa í fjórða sæti með þrjátíu stig, sextíu og fjórum stigum fyrir aftan McLaren i sætinu fyrir ofan.
Akstursíþróttir Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira