Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. maí 2026 22:26 Frambjóðendur í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Ásdís Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist vera himinlifandi með fyrstu tölur. Yrðu það lokatölur fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í bænum. Annar frambjóðandi flokksins var í áfalli. Allir oddvitar í Kópavogi virðast sáttir við sitt.
Flokkurinn er með 45 prósenta fylgi í fyrstu tölum og er langstærstur. „Þetta eru frábærar tölur, þetta er sá meðbyr sem við erum búin að finna fyrir, þetta er búið að ganga ofboðslega vel, höfum lagt allt í þetta, frábær niðurstaða eins og sakir standa en þetta eru auðvitað bara fyrstu tölur,“ segir Ásdís við Elísabetu Ingu fréttakonu Sýnar. „Ég er auðvitað ofboðslega stolt, líka um leið, meyr yfir þessari frábæri niðurstöðu. Vissulega voru þetta mínar björtustu væntingar, þetta endurspeglar það sem við höfum fundið á síðustu vikum, við höfum gengið í hús og við finnum að Kópavogsbúar eru ánægðir.“ Áfall í turninum „Þau eru rosalega góð, það er ekki hægt annað, þetta er auðvitað bara fram úr okkar björtustu vonum, þetta eru auðvitað bara fyrstu tölur en við höfum fundið fyrir miklum meðbyr,“ sagði Hjördís Ýr Johnson í viðtali við Bjarka Sigurðsson úr kosningapartýi Sjálfstæðisflokksins í Turninum í Kópavogi. Þar mátti vart heyra í viðmælanda yfir fagnaðarlátum. Hjördís viðurkennir að hún sé í áfalli yfir tölunum. Það væri draumur að þetta yrði lokaniðurstaðan, þó það séu allar líkur á að þetta muni breytast. „Ég skal alveg viðurkenna að þetta kemur á óvart en maður getur ekki verið annað en ótrúlega ánægður. Maður er með frábæran hóp, vinna vinnuna vel á gleði, orku og við erum mjög sátt.“ Sáttur við varnarsigur Orri Vignir Hlöðversson oddviti Framsóknar sagði við Elísabetu Ingu að hann væri sáttur við fylgi hans flokks. 11 prósent og einn mann í bæjarstjórn en 2022 fékk flokkurinn tvo. Síðan hefur flokkurinn verið í meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Orri, hvers vegna er fylgið ekki að skila sér til ykkar fyrst bæjarbúar eru svona sáttir við bæjarstjórn? „Það er góð spurning. Við höfum átt í góðu samstarfi með Sjálfstæðismönnum, ég óska þeim hjartanlega til hamingju, hvað okkur varðar, er ljóst að við erum að vinna okkur verulega upp miðað við kannanir.“ Þannig segist Orri vera sáttur með að enda með þetta fylgi, Framsókn sé stærri en Viðreisn og stærri en Miðflokkur en Orri tekur fram að hann hefði viljað halda seinni manninum. Tvöfalda fylgið og sáttur Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar segist líka vera sáttur. Flokkurinn tvöfaldi fylgi sitt með nítján prósenta fylgi og segist Jónas þakklátur. Hefðiru ekki viljað fella meirihlutann? „Það er alltaf markmiðið að koma á breytingum, nóttin er ung, við erum enn að telja hérna í Kórnum, það er aldrei að vita hvað gerist með kvöldin en auðvitað virðum við niðurstöðu kjósenda.“ Ertu svekktur? „Nei, ég er ótrúlega þakklátur fyrir fólkið, við höfum unnið að þessu myrkranna á milli í margar vikur.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Kosningar til sveitarstjórna fóru fram í sveitarfélögum landsins laugardaginn 16. maí og var fylgst grannt með gangi mála í kosningasjónvarpi Sýnar og kosningavaktinni á Vísi. Áfram verður fylgst með gangi mála. 16. maí 2026 07:03 Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson taka á móti góðum gestum í Góðu kosningakvöldi í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn klukkan 20. Telma Tómasson og Gunnar Sigurðarson rýna í tölurnar og fréttamenn verða í kosningapartýjum úti um borg og bæ. 16. maí 2026 17:56 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira
Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Kosningar til sveitarstjórna fóru fram í sveitarfélögum landsins laugardaginn 16. maí og var fylgst grannt með gangi mála í kosningasjónvarpi Sýnar og kosningavaktinni á Vísi. Áfram verður fylgst með gangi mála. 16. maí 2026 07:03
Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson taka á móti góðum gestum í Góðu kosningakvöldi í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn klukkan 20. Telma Tómasson og Gunnar Sigurðarson rýna í tölurnar og fréttamenn verða í kosningapartýjum úti um borg og bæ. 16. maí 2026 17:56