Handbolti

Fær­eyjar á HM í fyrsta sinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hákun West av Teigum skoraði ellefu mörk þegar Færeyjar tryggðu sér farseðilinn á HM í Þýskalandi á næsta ári.
Hákun West av Teigum skoraði ellefu mörk þegar Færeyjar tryggðu sér farseðilinn á HM í Þýskalandi á næsta ári. getty/Marco Steinbrenner

Karlalandslið Færeyja í handbolta tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu 2027 með sigri á Bosníu í kvöld, 33-28.

Færeyjar voru í góðri stöðu eftir tveggja marka sigur í fyrri leiknum gegn Bosníu, 22-24, í Tuzla á fimmtudaginn.

Liðin mættust öðru sinni í Þórshöfn í kvöld. Bosníumenn leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 15-17, og staðan í einvíginu var því jöfn, 39-39 samanlagt.

Færeyingar skoruðu fyrstu þrjú mörkin í seinni hálfleik og um miðbik hans breyttu þeir svo stöðunni úr 22-22 í 26-22.

Eftir þennan góða kafla þyngdist róður Bosníu mjög og liðið ógnaði Færeyjum ekki það sem eftir lifði leiks. 

Hákun West av Teigum skoraði ellefu mörk fyrir færeyska liðið sem vann leikinn, 33-28, og einvígið, 57-50 samanlagt.

Óli Mittún skoraði sex mörk fyrir Færeyjar en frændi hans og leikmaður Kiel, Elias Ellefsen á Skipagøtu, lék ekki með í einvíginu.

Bjarni í Selvindi, leikmaður nýkrýndra Íslandsmeistara Vals, skoraði eitt mark fyrir Færeyjar í leiknum í kvöld en samherji hans á Hlíðarenda, Allan Norðberg, var ekki á meðal markaskorara.

Færeyjar komust á EM 2024 og 2026 og verða í fyrsta sinn með á HM sem fer fram í Þýskalandi í byrjun næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×