Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar 16. maí 2026 07:42 Í dag kjósa Reykvíkingar nýja borgarstjórn til næstu fjögurra ára. Við í Viðreisn höfum lagt áherslu á að breyta þurfi forgangsröðuninni í borginni. Við viljum setja minni peninga í kerfið og meiri peninga út í hverfin og í fólkið. Við viljum meira frjálslyndi við stjórn borgarinnar þegar kemur að samgöngum, húsnæðisuppbyggingu og því hvernig fólk kýs að lifa sínu lífi. Við höfum verið gagnrýnin í þessari kosningabaráttu og sagt satt um hverju við teljum að þurfi að breyta. Einfaldara stjórnkerfi og innviðaátak Við viljum byrja á því að einfalda stjórnkerfið hjá borginni með það að markmiði að Reykjavík njóti stærðarhagkvæmni í rekstri og þjónustu sem langstærsta sveitarfélagið á landinu. Svo er ekki í dag. Við viljum lækka kostnað við stjórnsýslu borgarinnar um a.m.k. milljarð á ári og koma þeim peningum hraðar út í hverfin. Næsta borgarstjórn þarf að fara í innviðaátak í hverfunum, t.d. þegar kemur að leik- og grunnskólum, íþróttamannvirkjum og því að laga brotnar gangstéttir. Við viljum útbúa mælaborð framkvæmda svo ljóst sé hvaða framkvæmdir eru hvar í röðinni. Við viljum setja stjórn yfir eignasafn borgarinnar og búa til skýrleika í ábyrgð á viðhaldi bygginga. Svo er ekki í dag. Kennarar fái að kenna Reykjavík er stærsti vinnustaður kennara á landinu og kennarar eru lykilfólk í því að borgin verði leiðandi í skólamálum. Til að svo verði þurfa kennarar meiri stuðning inn í skólana. Þeir þurfa líka að fá að vera kennarar en ekki sérfræðingar í myglu, túlkar eða sálfræðingar. Svo er ekki í dag. Samgöngusáttmálinn er fyrir næstu kynslóð Reykjavík á að vera borg sem næsta kynslóð velur að búa í og elskar að búa í. Til þess að svo megi vera verðum við að halda áfram með Samgöngusáttmálann sem er stærsta framkvæmd frá upphafi Reykjavíkur fyrir bíla, almenningssamgöngur og hjólastíga. Hik varðandi Samgöngusáttmálann þýðir áfram kyrrstaða og bið í samgöngumálum í borg sem er að kafna úr umferð. Ný kynslóð með uppbrettar ermar Á lista Viðreisnar er öflugur hópur Reykvíkinga sem hefur rekið sig á borgarkerfið með einum eða öðrum hætti. Foreldrar barna sem bíða eftir plássi og þjónustu. Fólk sem hefur stofnað og rekið fyrirtæki og lent í biðsal borgarinnar eftir leyfum, úttektum og svörum. Kona sem hefur unnið á öllum skólastigum og vill, eins og við öll, að Reykjavík taki aftur í forystu í skólamálum. Maður sem hefur verið bæjarstjóri í tveimur sveitarfélögum og ráðgjafi í 59 sveitarfélögum. Við erum ný kynslóð sem ætlum að bretta upp ermarnar fyrir borgarbúa. Við tökum það alvarlega að bjóða okkur fram til þess að forgangsraða og fara vel með sameiginlega sjóði borgarbúa. Við viljum tryggja vinnufrið og festu í Ráðhúsinu næstu fjögur árin. Það gerist með sterkum samstíga meirihluta sem setur verkefnin í forgang en er ekki upptekinn í stólaleikjum. Við bjóðum okkur fram til þess að taka ábyrgð og bera ábyrgð á því sem gerist á næsta kjörtímabili í Reykjavíkurborg. Snúum við forgangsröðinni. Snúum við fókusnum. Snúum við Reykjavík. X-C. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar