Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. maí 2026 07:12 Margir verslunareigendur og íbúar í Austur-Jerúsalem sjá sér þann kost vænstan að yfirgefa svæðið á meðan gangan fer fram, enda hafa göngumenn farið fram með hótunum og ofbeldi. AP/Leo Correa Ísraelskir þjóðernissinnar kölluðu eftir dauða og tortímingu Palestínumanna í árlegri göngu sinni um palestínska hluta Austur-Jerúsalem í gær. „Megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ heyrðist hrópað er mannfjöldinn gekk í gegnum gamla borgarhlutann.
Flestum verslunum Palestínumanna var lokað og margir forðuðu sér fyrir gönguna en þó kom til átaka, meðal annars þar sem ungir Ísraelsmenn réðust gegn íbúum með hrópum og ofbeldi. „Ég er kominn hingað til að sýna heiminum að þetta er borgin okkar. Þetta er hið heilaga land. Guð gaf okkur þetta land og þessa borg,“ sagði hinn 19 ára Ariel Amichai, sem ferðaðist til borgarinnar til að taka þátt í göngunni. Spurður um boðskap göngunnar sagði hann: „Að þeir verði að fara. Þetta er landið okkar. Og þeir geta ekki bara verið hérna og reynt að stinga okkur eða drepa okkur.“ Gangan er farin til að marka yfirtöku Ísraels á austurhluta Jerúsalem árið 1967. Hún nýtur stuðnings yfirvalda, sem standa meðal annars fyrir ferðum frá landtökubyggðum á Vesturbakkanum til að íbúar þar geti tekið þátt. Menn sungu og dönsuðu og fögnuðu yfirráðum Ísraels yfir Musterishæð.AP/Ohad Zwigenberg Fjármálaráðherrann Bezalel Smotrich og þjóðaröryggisráðherrann Itamar Ben-Gvir voru meðal þeirra sem tóku þátt í göngunni. Ben-Gvir flaggaði ísraelskum fána við al-Aqsa moskuna, þar sem aðeins múslimar mega biðja, og dansaði og söng. Þá sagði hann á samfélagsmiðlum að hann gæti nú stoltur sagt að Ísraelsmenn hefðu aftur tekið yfir stjórn Musterishæðar. Um það bil 400 ísraelskir sjálfboðaliðar samtakanna Standing Together, íklæddir fjólubláu, stóðu vörð og freistuðu þess að vernda palestínska íbúa fyrir ofbeldi göngumanna. „Já, það er hættulegt fyrir okkur en það er ekkert miðað við hættuna sem steðjar að Palestínumönnum sem búa hérna,“ sagði Suf Patishi, einn skipuleggjenda samtakanna. Guardian greindi frá.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira