Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar 13. maí 2026 20:11 Mánudaginn 11. maí birti New York Times umfjöllun um hrottalegt kynferðisofbeldi ísraelskra fangavarða, hermanna, landræningja og yfirheyrslufólks gagnvart Palestínufólki. Þetta bandaríska stórblað er hliðhollt Ísraelsríki og þess vegna vakti greinin mikla athygli, raunar svo mikla að ísraelsk stjórnvöld fordæmdu greinina opinberlega með tilkynningum utanríkisráðuneytis þess. Eitt af því sem fór sérstaklega fyrir brjóstið á talsmönnum ríkisins var að sagt var frá því að Ísrael notar hunda til þess að nauðga föngum. Gagnárás Ísraels gegn fréttum Í grein New York Times kemur í sjálfu sér ekkert fram sem ekki endurspeglast í ótal skýrslum ísraelskra, palestínskra og alþjóðlegra mannréttindasamtaka, margra stofnana Sameinuðu þjóðanna, sem og í mörgum fræðigreinum. Greinin í New York Times ber titilinn The Silence That Meets the Rape of Palestinians, sem vekur athygli á þeirri þögn sem ríkir um nauðganir starfsfólks ísraelskra pyntingabúða á Palestínufólki í vestrænum fjölmiðlum. Ísraelsk yfirvöld svöruðu grein New York Times ekki eingöngu með fordæmingum heldur með gagnárás. Daginn eftir að greinin birtist í New York Times gáfu ísraelsk samtök sem stofnuð voru haustið 2023 enn eina skýrslu sína um meint kynferðisofbeldi Hamas í október 2023 og skýrslunni var dreift á alla meginstraumsmiðla í vestrinu. Eins og vanalega tóku hinir vestrænu miðlar skýrsluna upp, þrátt fyrir að forsvarsfólk samtakanna sem gerðu skýrsluna hafi margsinnis verið staðið að beinum ósannindum og lélegum vinnubrögðum, og hafi sterk tengsl við ísraelsk stjórnvöld. Þannig tókst Ísrael einu sinni enn að drepa á dreif athygli heimsins frá hrikalegum glæpum þess og styrkja þá hugmynd að hið ólöglega hernám, aðskilnaðarstefna og þjóðarmorð séu réttlætanleg eða að minnsta kosti að hér sé um að ræða tvo jafnstæða deiluaðila sem báðir beiti hræðilegu ofbeldi. Valkvæð umfjöllun fréttastofu RÚV Fréttastofa RÚV sagði ekki frá umfjöllun New York Times og hefur í þessu samhengi ekkert minnst á skýrslur um umfangsmikið kynferðisofbeldi á vegum ísraelskra stjórnvalda sem á sér langa sögu og stendur enn yfir, eins og skýrslu ísraelsku mannréttindasamtakanna B‘Tselem,Living Hell: The Israeli Prison System as a Network of Torture Camps sem kom út í janúar síðastliðnum. Í dag er talið að á milli 9 og 10 þúsund Palestínufólks sé í þessum pyntingabúðum, þar af á milli 300 og 400 börn. Hvers vegna valdi fréttastofa RÚV að slá upp skýrslu nýstofnaðra ísraelskra samtaka á meðan hún þegir um frétt New York Times og skýrslur virtra og gamalgróinna mannréttindasamtaka? Á vef RÚV segir að fréttaflutningur og dagskrárgerð byggist á trúverðugleika og óhlutdrægni. Ég á bágt með að sjá þann trúverðugleika eða óhlutdrægni þegar fréttastofan velur með þessum hætti að vekja athygli á ótraustri heimild um hvað gerðist á einum degi fyrir meira en tveimur árum en hunsar traustar heimildir um ofbeldi á miklu stærri skala sem á sér enn þá stað nákvæmlega núna. Ég tek undir orð Þórðar Magnússonar á Vísi frá 6. maí: það að enduróma í sífellu áróður ísraelsku áróðursmaskínunnar gagnrýnislaust er ekki „hlutlaus fréttaflutningur“. Höfundur er lektor í stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Gíslason Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar