Handbolti

Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Dagur Sigurðsson horfði upp á tap Króatíu gegn Svíþjóð í fyrri æfingaleik liðanna. 
Dagur Sigurðsson horfði upp á tap Króatíu gegn Svíþjóð í fyrri æfingaleik liðanna.  Getty/Luka Stanzl

Lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Króatíu lutu í lægra haldi fyrir Svíþjóð, 34-31 í æfingaleik liðanna.

Svíþjóð tók á móti Króatíu í Íslendingabænum Kristianstad og vann flottan sigur. Leikar stóðu jafnir í hálfleik, 17-17, en Svíarnir stigu fram úr í seinni hálfleik og fögnuðu þriggja marka 34-31 sigri.

Nýliðinn í sænska landsliðinu, Leon Halén, átti öflugan fyrri hálfleik og skoraði fjögur mörk en lauk leik með fimm mörk. Hann var spurður eftir leik hver stærsti munurinn væri á því að spila landsleik miðað við leik í sænsku úrvalsdeildinni.

„Þessir strákar eru virkilega stórir. Mér leið eins og barni við hliðina á Króötunum,“ sagði Halén við Expressen.

Felix Claar tók sér ekki frí frá landsliðinu eins og íslenskir leikmenn Magdeburg. Sina Schuldt/picture alliance via Getty Images

Felix Claar, leikmaður Magdeburg, og Axel Mansson, leikmaður Kristianstad, léku síðan listir sínar í seinni hálfleik og enduðu markahæstir með sjö mörk hvor fyrir Svíþjóð.

Króatía spilaði á vængbrotnu liði því Luka Cindric, Leon Susnja og Filip Glavas voru fjarverandi vegna meiðsla.

Liðin mætast aftur í æfingaleik, að því sinni í Króatíu, sunnudaginn 16. maí. Bæði Svíþjóð og Króatía hafa tryggt sér sæti á HM á næsta ári og spila því æfingaleiki en ekki keppnisleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×