Handbolti

Til­kynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði lands­leik

Sindri Sverrisson skrifar
Holger Glandorf og Arnar Freyr Arnarsson við undirskriftina.
Holger Glandorf og Arnar Freyr Arnarsson við undirskriftina. Flensburg

Landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson hefur skrifað undir samning við þýska stórliðið Flensburg og gengur í raðir þess í sumar.

Flensburg tilkynnti um þetta á sama tíma og Arnar er í Egyptalandi að spila með íslenska landsliðinu í vináttulandsleik við heimamenn sem var að ljúka með 31-30 sigri Íslands.

Samningur Arnars, sem er þrítugur og kemur frá Melsungen, er til eins árs. Hann verður fimmti Íslendingurinn til að spila fyrir Flensburg og nær því á undan Viggó Kristjánssyni sem kemur til félagsins sumarið 2027. Áður hafa Teitur Örn Einarsson, Ólafur Gústafsson, Arnór Atlason, Einar Hólmgeirsson og Alexander Petersson spilað fyrir félagið.

„Það að fara til SG Flensburg-Handewitt er stórt skref fyrir mig og eitthvað sem gerir mig mjög stoltan. Ég hef heyrt svo margt gott um félagið, stuðningsmennina og andrúmsloftið í kringum liðið. Ég get ekki beðið eftir því að byrja og hjálpa liðinu að ná árangri,“ er haft eftir Arnari á heimasíðu Flensburgar.

q

Holger Glandorf, framkvæmdastjóri Flensburgar, og þjálfarinn Ales Pajovic fagna komu Arnars.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að semja við línumann sem hefur þegar reynslu úr Bundesligunni. Álagið yfir allt tímabilið er gríðarlegt og við vildum skapa tækifæri til að gefa Blaga og Emil nauðsynlega hvíld án þess að tapa gæðum. Arnar hefur nákvæmlega þann prófíl sem við vorum að leita að – líkamlega sterkur, reyndur og með frábæran liðsanda,“ sagði Glandorf.

„Arnar er leikmaður sem verður mjög verðmætur fyrir liðið okkar, bæði í sókn og vörn. Hann leggur gríðarlega hart að sér fyrir liðið sitt, hefur reynslu úr Bundesligunni og mun veita okkur meiri sveigjanleika í línumannsstöðunni. Sérstaklega á löngu tímabili er mikilvægt að geta dreift álaginu á fleiri leikmenn,“ sagði Pajovic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×