Handbolti

„Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Lovísa Thompson átti stóran þátt í að tryggja Val sigurinn og Íslandsmeistaratitlinn. 
Lovísa Thompson átti stóran þátt í að tryggja Val sigurinn og Íslandsmeistaratitlinn.  Vísir/Ernir

Lovísa Thompson skoraði sex mörk fyrir Val þegar liðið vann ÍBV og varð Íslandsmeistari í handbolta kvenna. Lovísa var valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar 

„Þetta var frábært og þessi leikur var mjög skemmtilegur. Það var auðvelt að gíra sig í þennan leik. Um leið og síðasta leik lauk þá hlakkaði mig bara að koma hingað til Eyja. Það er mjög gaman að spila hérna og við vorum staðráðnar í að klára þetta í þessum leik,“ sagði Lovísa í samtali við Símann. Lovísa komast ekki á blað í síðasta leik en sýndi sitt rétta andlit að þessu sinni. 

„Við spiluðum mun betur að þessu sinni en í síðasta leik og ég er mjög glöð að við höfum náð að klára þetta. Tímabilið er búið að vera langt og strangt og við höfum lent í ýmsu. Þess vegna er ofsalega ljúft að titillinn sé í höfn,“ sagði skyttan enn fremur.  

„Ungu leikmennirnir okkar eiga mikið lof skilið hvernig þær spiluðu hér á stóra sviðinu. Þær eru að taka mikla ábyrgð og eru að bæta sig með hverjum leiknum sem þær spila. Við erum með góða blöndu af reynslumiklum leikmönnum sem hafa unnið titla áður og efnilegum leikmönnum sem eru að taka stærra og stærra hlutverk,“ sagð hún. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×