Stjórnsýslan hafi lagt undir sig landið og miðin Jakob Bjarnar skrifar 11. maí 2026 13:32 Hvernig geta tæplega 400.000 manns, samfélag á stærð við meðalhverfi í evrópskri borg, rekið sinn eigin gjaldmiðil og seðlabanka, forsetaembætti og fjölda ráðuneyta, óteljandi ríkisstofnanir og ógnarstórt opinbert kerfi á tveimur stjórnsýslustigum, spyr Halldór Armand. vísir/rax Pistill Halldórs Armands í Sunnudagsmogganum hefur sannarlega hitt í mark en þar fjallar hann um kerfi sem er að vaxa okkur yfir höfuð. Halldór gerir því skóna að þetta sé vegna þess að Íslendingar telji að hin sturlaða yfirbygging sé vegna þess að við teljum okkur þurfa að sanna fyrir umheiminum að við séum ekki kotbændur heldur þjóð meðal þjóða. Niðurstaðan er hins vegar nöturleg. „
Hvernig geta tæplega 400.000 manns, samfélag á stærð við meðalhverfi í evrópskri borg, rekið sinn eigin gjaldmiðil og seðlabanka, forsetaembætti og fjölda ráðuneyta, óteljandi ríkisstofnanir og ógnarstórt opinbert kerfi á tveimur stjórnsýslustigum? Höfum við einhvern tímann spurt hvort okkar samfélag sé þess eðlis að þurfa þetta allt? Við lifum í leikmynd af stóru ríki,“ segir Halldór Armand meðal annars í pistli sínum. Kerfið þenst út Hann bendir á að á höfuðborgarsvæðinu séu 79 kjörnir fulltrúar í sjö ólíkum sveitarfélögum. „En í dag hefur stjórnsýslan lagt samfélagið meira og minna undir sig. Það er eins og henni sé ekkert óviðkomandi; kerfið þenst út vegna þess að það framleiðir sitt eigið mikilvægi.“ Egill Helgason sjónvarpsmaður deilir pistli Halldórs Armands á Facebooksíðu sinni og Eyþór Arnalds tónlistarmaður og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík eru sammála um að Halldór hitti naglann á höfuðið! Og Óðinn Jónsson blaðamaður segir þessa óskaplegu yfirbyggingu hafa verið sér undrunarefni alla tíð. „En ef einhver hefur sagt að leggja ætti niður forsetaembættið og fækka alþingismönnum, sveitarfélögum og ríkisstofnunum er nánast litið á viðkomandi sem öfgamann. Samtryggingarkerfið, valdasnobb og frændhygli, íhaldssemi, landlægur kotungsbragur og útlendingaótti eru að kæfa okkur.“ Af hverju erum við með alla þessa stjórnendur? Halldór Armand bendir á að í kosningabaráttunni virðist enginn efast um að það sé kerfisins sjálfs að leysa vandamál þess. En hvað ef kerfið sjálft er vandamálið? „Af hverju erum við með tvö stjórnsýslustig? Af hverju erum við með alla þessa stjórnendur? Alla þessa endalausu titla og yfirvald?“ Og hann kemst að þeirri niðurstöðu að Íslendingar séu uppteknir af því að staðfesta og sanna stöðu sína sem fyrsta heims þjóð með því að stilla sér upp sem algjörri andstæðu þriðja heimsins eða vanþróaðra landa.“
Stjórnsýsla Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjölmiðlar Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira