Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Árni Sæberg skrifar 11. maí 2026 09:12 Mynd frá handtöku mannsins þann 6. maí. Til hægra megin við hann má sjá Benedikt Gíslason, bankastjóra Arion banka. Vísir Arion banki er íslenska fjármálafyrirtækið sem varð fyrir barðinu á rúmenskum tölvuþrjóti í apríl. Hann nýtti sér villu í kerfi bankans til þess að millifæra á sig um 160 milljónir króna. Arion banki hefur endurheimt fjármunina að mestu leyti.
Líkt og Vísir fjallaði um í gær handtók lögreglan í Búkarest 33 ára rúmenskan karlmann á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar þann 6. maí, að því er fram kom í tilkynningu sem rúmenska lögreglan gaf út á laugardag. Maðurinn er til rannsóknar hjá íslenskum yfirvöldum fyrir fjársvik frá íslenskum banka og peningaþvætti, að sögn rúmensku lögreglunnar. Í kjölfarið úrskurðaði dómstóll í Búkarest manninn í 30 daga gæsluvarðhald og að hann skyldi framseldur til Íslands. Hafa endurheimt nánast allt Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, segir í samtali við Vísi að Arion banki sé bankinn sem um ræðir. „Viðkomandi nýtti sér kerfisvillu í okkar kerfum og gat endurtekið tiltekna aðgerð oftar en hann átti að geta gert. Upp um málið kemst hér innanhúss, það kært til lögreglu og villan löguð. Engin merki eru um að fleiri hafi nýtt sér þessa villu. Viðkomandi komst með ólögmætum hætti yfir um 160 milljónir króna sem munu endurheimtast að nær öllu leyti. Þökkum við lögreglu og öðrum fjármálastofnunum samstarfið við að endurheimta fjármunina,“ segir hann. Sambærilegt fyrra máli Í nóvember síðastliðnum kom upp annað fjársvikamál, þar sem hópur fólks hafði haft um 400 milljónir króna af íslenskum bönkum, mest af Landsbankanum. Haraldur Guðni segir að málin tvö séu sambærileg að því leytinu til að viðkomandi hafi nýtt sér kerfisvillu til að framkvæma tiltekna aðgerð oftar en hann átti að geta gert. Í fyrra máli nýttu tölvuþrjótarnir sér villu til þess að millifæra fjármuni án þess að þeir færu út af úttektarreikningi. Þá segir hann að hvorki sé talið að málin tvö tengist né að aðrir hafi nýtt sér gallann sem Rúmeninn nýtti sér.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Lögreglumál Rúmenía Tengdar fréttir Þjófarnir lifðu eins og kóngar um stund Karlmennirnir fimm sem sviku hundruð milljóna króna út úr Landsbankanum virðast fæstir hafa hugsað glæpinn til enda. En í skamma stund lifðu þeir sem kóngar, léku sér í spilavítum á netinu og keyptu sér flotta bíla. 6. nóvember 2025 13:33 Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Embætti Héraðssaksóknara hefur fært fjármuni, sem fjársvikarar höfðu af Landsbankanum og Arion banka vegna kerfisgalla hjá Reiknistofu bankanna, yfir á eigin reikning. Það var gert til þess að losa frysta reikninga fólks sem hafði fengið fjármunina lagða inn á þá af fjársvikurunum. 11. nóvember 2025 11:58 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira
Þjófarnir lifðu eins og kóngar um stund Karlmennirnir fimm sem sviku hundruð milljóna króna út úr Landsbankanum virðast fæstir hafa hugsað glæpinn til enda. En í skamma stund lifðu þeir sem kóngar, léku sér í spilavítum á netinu og keyptu sér flotta bíla. 6. nóvember 2025 13:33
Færði féð yfir á eigin reikning til að losa frysta reikninga Embætti Héraðssaksóknara hefur fært fjármuni, sem fjársvikarar höfðu af Landsbankanum og Arion banka vegna kerfisgalla hjá Reiknistofu bankanna, yfir á eigin reikning. Það var gert til þess að losa frysta reikninga fólks sem hafði fengið fjármunina lagða inn á þá af fjársvikurunum. 11. nóvember 2025 11:58