Atvinnulíf

Eins og Steve Jobs hafi verslað í fata­skápinn hans

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, með hundinum Káti sem eflaust vaknar töluvert á undan Aríel á morgnana. Enda segist Aríel taka af sér snjallúrið vel fyrir miðnætti af ótta við að það opinberi slæmar svefnvenjur hans.
Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, með hundinum Káti sem eflaust vaknar töluvert á undan Aríel á morgnana. Enda segist Aríel taka af sér snjallúrið vel fyrir miðnætti af ótta við að það opinberi slæmar svefnvenjur hans. Vísir/Vilhelm

Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Þessi spurning kemur mér ekki vel. Ég er afar morgunsvæfur en á fjögur ung börn og góða eiginkonu sem öll eru árrisulli en ég sjálfur svo ég kemst ekki hjá því að vakna við bramboltið. Ég skreiðist fram úr þegar flestir eru komnir langt á veg með morgunmatinn.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég er óskemmtilega rútínufastur. Ég drekk alltaf nákvæmlega sama staðlaða púðakaffibollann frá Te&kaffi úr sömu ódýru senseo-vélinni sem hefur dugað síðustu 8 árin og blanda nýmjólk við til helminga. 

Að því loknu fer ég í fataskápinn minn sem er eins og Steve Jobs hafi verslað í, það er að segja ég gríp einar af svörtu gallabuxunum sem eru allar nákvæmlega eins. 

Það sama má segja um skyrturnar sem eru allar frá sama framleiðanda sem er afar hentugt. 

„Sama og síðast“ einkennir allar ferðir mínar í fataverslanir. 

Svo er algjört lykilatriði að kyssa konuna og börnin áður en leiðin liggur í vinnuna.“

Hlærðu stundum að þinni eigin fyndni?

„Algjörlega. Það er þó ekki nema á nokkurra ára fresti sem mér tekst að hlæja sjálfan mig og það þarf að haldast í hendur við að engum öðrum þyki það. 

Dæmi: 

Fyrir þó nokkrum árum var ég staddur í gleðskap þar sem einn gestanna hét Páll. Þegar leið á kvöldið bættist við annar maður að nafni Páll. Þá gekk ég á dyr og sagði að mér væri ekki til setunnar boðið því veislugestirnir væru orðnir algjörlega bí-pálar.“

Aríel segir ákveðna sælu- og sigurtilfinningu fylgja því þegar verkefnalistinn, sem skrifaður er niður á minnismiða, er allur útstrikaður og klár í tunnuna. Að skrifa allt niður virkar því best fyrir hann til að halda utan um skipulagið, auk hreyfingar og hreystis.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Stærstu verkefnin þessa dagana tengjast áframhaldandi uppbyggingu Sjómannadagsráðs fyrir dótturfélög sín, Hrafnistu og DAS-íbúðir, sérstaklega í Hafnarfirði þar sem stefnt er að stækkun hjúkrunarheimilisins og fjölgun íbúða fyrir eldri borgara. Það er bæði stórt og gefandi verkefni. 

Svo er sjómannadagurinn á Grandanum fram undan, 7. júní, og þar fer ótrúleg orka í undirbúninginn á hverju ári.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ég er nokkuð gamaldags þegar kemur að þessu. 

Ef það eru ákveðin atriði sem ég þarf að klára yfir vikuna eða daginn þá hreinlega skrifa ég þau á minnismiða og strika yfir og þegar miðinn er útstrikaður þá fer hann beint í tunnuna. 

Þá fylgir því mikil sælu- og sigurtilfinning. 

Svo bý ég að því að vera nokkuð minnugur og ég leyfi verkefnum í þróun að eiga sitt pláss í þar til gerðum hólfum í höfðinu. 

Til að hugur og sál virki vel þarf þó að rækta búkinn svo ég verð helst daglega að komast í líkamsrækt og fá útrás fyrir töluverða kraftadellu sem hrjáir mig. Á meðan á því stendur þroskast og þróast helstu hugmyndir sem ég svo hrindi síðar í framkvæmd með aðstoð miðanna góðu.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Það er ekki til fyrirmyndar. Ég fer helst ekki að sofa fyrr en mér líður eins og ég hafi nýtt daginn til fullnustu, hafi klárað þau verkefni í vinnu og á heimilinu sem ég ætlaði mér, hafi notið dagsins með fjölskyldunni og það er vel að merkja algjörlega ófrávíkjanlegt að við borðum alltaf kvöldmat saman. 

Þegar við hjónin erum búin að svæfa börnin þá er kjörið að setjast með hljóðfæri og glíma við að læra nýtt lag, nú eða slökkva á hausnum yfir mátulega góðum amerískum þætti. 

Af ótta við að snjallúrið dæmi mig fyrir ókristilegar svefnvenjur þá er ég löngu búinn að taka það af mér fyrir miðnætti en það er vel skriðið yfir það þegar ég loks legg höfuðið á koddann.“


Tengdar fréttir

Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari

Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi.

Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar.

Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn

Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný.

Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér

Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×