Sterkur rekstur og skýr sýn Helgi Kjartansson og Stefanía Hákonardóttir skrifa 8. maí 2026 13:32 Rekstur og traust fjárhagsstaða eru meðal mikilvægustu þátta í stjórnun hvers sveitarfélags. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur nú lokið fyrri umræðu um ársreikning ársins 2025 og sýna niðurstöðurnar skýrt að reksturinn hefur verið traustur og stýrt af ábyrgð. Þegar litið er yfir ársreikninginn er auðvelt að festast í hugtökum á borð við rekstrarafgang, eiginfjárhlutfall og skuldaviðmið, en fyrir okkur segja niðurstöðurnar þó fyrst og fremst að Bláskógabyggð vex af ábyrgð og er með skýra sýn á framtíðina. Rekstur sveitarfélagsins var jákvæður, 149 milljónir króna í A-hluta, og 327 milljónir króna í samanteknum A- og B-hluta. Slík niðurstaða er ekki sjálfgefin í sveitarfélagi af okkar stærð, heldur afrakstur vandlegrar forgangsröðunar, ábyrgra ákvarðana og traustrar fjármálastjórnunar. Tekjur jukust umtalsvert milli ára, einkum vegna aukinna útsvars- og fasteignaskattstekna, sem endurspeglar fjölgun íbúa og vaxandi atvinnustarfsemi. Efnahagsstaða sveitarfélagsins styrktist samhliða þessari þróun. Eigið fé A- og B-hluta jókst um tæpar 440 milljónir króna og nam í lok árs 2,3 milljörðum króna. Skuldaviðmið lækkaði milli ára og er nú 48%, verulega undir lögbundnu hámarki sveitarstjórnarlaga sem er 150%. Þetta veitir mikilvægt svigrúm til uppbyggingar, en kallar jafnframt á ábyrgð í allri ákvarðanatöku til framtíðar. Á sama tíma lækkuðu skuldir við lánastofnanir þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í innviðum. Það sem skiptir okkur ekki síður máli en tölurnar sjálfar er hvernig fjármunirnir eru nýttir. Fræðslu- og uppeldismál eru áfram stærsti málaflokkur Bláskógabyggðar og renna tæplega 57% af skatttekjum aðalsjóðs til málefna barna og ungmenna. Þetta er meðvituð forgangsröðun sem endurspeglar þá trú okkar að sterk framtíð samfélagsins byggist fyrst og fremst á menntun, velferð og jöfnum tækifærum. Á árinu 2025 var ráðist í umfangsmiklar og nauðsynlegar fjárfestingar í innviðum. Alls var fjárfest fyrir tæpar 600 milljónir króna í A- og B-hluta, meðal annars í íþróttamannvirkjum, leikskólum, vatns- og fráveitukerfum og gatnagerð. Þetta eru framkvæmdir sem hafa bein áhrif á daglegt líf íbúa og tryggja að uppbygging haldist í hendur við fjölgun íbúa og auknar kröfur til þjónustu. Íbúum Bláskógabyggðar fjölgaði um 6,7% á árinu, sem er umtalsvert umfram landsmeðaltal. Þess má geta að á þessu kjörtímabili hefur íbúum fjölgað um 32%. Um leið býr sveitarfélagið við þá sérstöðu að um 40% íbúa eru með erlent ríkisfang. Þessi þróun felur í sér bæði áskoranir og tækifæri. Áskoranir snúa einkum að tungumáli og upplýsingagjöf, en tækifærin liggja í fjölbreytni, reynslu og nýjum sjónarhornum sem styrkja samfélagið í heild. Slíkur vöxtur kallar á meðvitaðar ákvarðanir og skýra framtíðarsýn. Sérstaða Bláskógabyggðar felst ekki aðeins í landslaginu eða öflugum atvinnugreinum á borð við landbúnað og ferðaþjónustu, heldur í fólkinu og þeirri ábyrgð sem við berum gagnvart bæði samfélagi og náttúru. Á næsta kjörtímabili eru fyrirhugaðar fjárfestingar sem munu hafa bein áhrif á daglegt líf íbúa og lífsgæði þeirra og má þar m.a. nefna stækkun skóla til að mæta fjölgun barna, uppbyggingu íþróttamannvirkja, gatna- og stígagerð, fráveituframkvæmdir, að tryggja að nóg sé til af heitu og köldu vatni og auka lóðaframboð til að styðja við áframhaldandi fólksfjölgun og atvinnuuppbyggingu. Til að hægt sé að ráðast í allar þessar fjárfestingar sem framundan eru þarf rekstur sveitarfélagsins að vera traustur og stýrt af ábyrgð og fagmennsku eins og verið hefur síðustu ár. Með sterkum rekstri, skýrri sýn fram á við og auknu samtali við íbúa, teljum við að Bláskógabyggð sé vel í stakk búin til að takast á við verkefni framtíðarinnar af ábyrgð, festu og yfirvegun. Höfundar eru oddviti og varaoddviti Bláskógabyggðar og skipa 1. og 2. sætið á T – listnum í Bláskógabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bláskógabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar