Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar 9. maí 2026 07:02 Borg sem er hugsuð út frá þörfum barna er borg sem virkar fyrir okkur öll. Börn þurfa ekki síður en fullorðnir að komast leiðar sinnar með öruggum og fljótlegum hætti hvort sem það er innan hverfisins eða á milli hverfa. Staðreyndin er sú að börn keyra ekki bíla. Borg sem er göngu- og hjólavæn ásamt því að hafa öflugar almenningssamgöngur og sterka hverfakjarna er borg sem styður við lífsgæði og sjálfstæði barna. Minnkum skutlið Flestir foreldrar þekkja skutlið sem því fylgir að eiga börn, hvort sem það er í skóla, tómstundir eða annað. Við minnkum skutlið með því að byggja borg þar sem hverfakjarnar eru sterkir og vegalengdir eru stuttar. Stefna Samfylkingarinnar hefur verið að byggja upp svokölluð 15 mínútna hverfi þar sem nauðsynleg þjónusta og afþreying er í að hámarki 15 mínútna fjarlægð. Þar er íþróttahús, skóli, matvörubúð, frístundamiðstöð, kaffihús og leikvellir í nálægð við þar sem fólk býr. Þessi stefna styður við félagslíf barna og einfaldar líf þeirra, ekki síður en foreldranna sem annars þyrftu að skutla börnunum á þessa staði. Við verðum að halda áfram á þeirri leið svo fleiri gefst kost á að njóta þessara lífsgæða. Barnvæn borg felur einnig í sér öflugar almenningssamgöngur. Samfylkingin í Reykjavík hefur nú gert grunnskólabörnum ókeypis að ferðast um með Strætó. Þetta stuðlar að aukinni notkun Strætó. Þar að auki eru mun fleiri leiðir sem fara á aðeins 10 mínútna fresti á háannatíma. Höldum áfram að efla Strætó á meðan uppbygging Borgarlínu á sér stað. Það gerum við með því að fjölga áfram ferðum Strætó og innleiða nýtt leiðakerfi sem bætir tengingar innan og milli hverfa. Áframhaldandi uppbygging göngu- og hjólastíga Göngu- og hjólastígar eru einnig mikilvægt samgöngumál fyrir börn. Í Þrándheimi, þar sem ég bjó áður en ég flutti til Reykjavíkur, var ráðist í átak til að greina flytileiðir sem fólk nýtti sér þvers og kruss um alla borg. Þá var til dæmis verið að skoða svokallaða óskastíga sem myndast þegar mörg labba sömu sporin þar sem er ekki lagður stígur fyrir. Í síðustu viku var til umræðu í borgarstjórn stefna Reykjavíkurborgar um gönguvæna borg. Þar voru einmitt óskastígarnir teknir fyrir og það á að setja aukið fjármagn í viðhald göngustíga. Stefnt er að áframhaldandi uppbygging göngustíga og hjólastíga um alla borg. Hvað myndu börnin vilja? Samgöngur eru eitt af þeim málum sem hafa hvað mest áhrif á lífsgæði barna. Börn eiga að geta valið sér ferðamáta eftir því hvað hentar best hverju sinni. Að ganga, hjóla og nota almenningssamgöngur á að vera öruggt og aðgengilegt í borginni okkar. Þó eru flokkar sem vilja fækka valkostum í samgöngum, hætta við Borgarlínu og fjölga bílaakreinum út í hið óendanlega. Í borgarstjórnarkosningum 16. maí er kosið um hvert Reykjavík stefnir í samgöngumálum. Þá er spurningin: Viljum við færast nær því að vera eins og jafnaðarborgir Norðurlandanna þar sem fólk hefur raunverulegt val um samgöngumáta – eða viljum við gera Reykjavík að amerískri bílaborg undir forystu Sjálfstæðisflokksins? Hvað myndu börnin vilja? Höfundur skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Stein Olav Romslo Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar