Borgin er ekki að drukkna í einkabílum Þórir Garðarson skrifar 6. maí 2026 19:45 Því er haldið fram að í Reykjavík fjölgi bílum um allt að 100 í hverri viku. Borgin sé að drukkna í bílum og Borgarlínu þurfi til að draga úr umferðarteppum af völdum allra þessara bíla. En þetta er ekki mæling á umferð heldur fjöldi nýskráninga bifreiða á viku. 100 bílar á viku eru um 5.200 á ári. Það er ekki sprenging heldur hófleg aukning og endurnýjun sem segir lítið um raunverulegt álag á gatnakerfið. Tölurnar ganga ekki upp Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hefur íbúum fjölgað um rúm 20% á síðustu tíu árum. Á sama tíma sýnir talning Vegagerðarinnar að umferð um lykilæð eins og Ártúnsbrekku hefur aðeins aukist um um 9%. Ef rétt væri að borgin sé að fyllast af bílum ætti þessi tala að vera mun hærri. Hún er það ekki. Þvert á móti bendir hún til þess að umferð vaxi hægar en bæði íbúum og bílafjölda. Bílafjöldi er ekki sama og umferð Í stað þess að ræða raunmælda umferð er sífellt vísað í fjölda skráðra bíla. Það eru grundvallarmistök eða meðvituð einföldun. Nýskráður bíll er ekki endilega ný ferð á álagstíma. Stór hluti bílaflotans er hjá bílaleigum, hluti er varabílar heimila og margir bílar eru lítið notaðir og svo aðrir afskráðir á móti. Að draga beina línu frá nýskráningu yfir í umferð er einfaldlega rangt en hentar vel í pólitískri framsetningu. Tafir aukast en það er ekki vegna „of margra bíla“ Gögn frá Tom Tom sýna auknar umferðartafir í Reykjavík. Sú staðreynd er síðan notuð til að styðja söguna um „of marga bíla“. En tafir mæla flæði, ekki fjölda bíla. Þegar akreinum er fækkað, flæði breytt eða afkastageta minnkuð, þá aukast tafir. Lítil skerðing á flæði getur haft margföld áhrif á ferðatíma. Það þarf ekki fleiri bíla til að búa til meiri umferðarteppu, það nægir að hægja á kerfinu. Heimatilbúinn vandi á að réttlæta „lausnina“ Fyrst er sett fram einföld saga: borgin er að fyllast af bílum. Síðan er sú saga notuð til að réttlæta fyrirfram ákveðna lausn. En þegar gögnin eru skoðuð sést að vandinn er ekki fjölgun bíla. Umferð hefur ekki aukist í takt við íbúafjölgun. Þrátt fyrir það er haldið áfram með rangfærslurnar. Það er ekkert annað en pólitískt ofstæki. 200 milljarða lausn á tilbúnu vandamáli Borgarlínan er fjárfesting upp á hundruð milljarða króna. Eitt stærsta opinbera verkefni Íslandssögunnar. En sú forsenda að umferðin sé að „springa“ stenst ekki. Þessi fjárfestingaráform eru byggð á sandi. Borgarlínukórinn Í stað opinnar og gagnrýninnar greiningar hefur orðið til samkór þar sem ákveðin sjónarmið eru endurtekin án sannprófana. Spurningum er oftast svarað með slagorðum fremur en gögnum. Byrjum á réttum spurningum Ef markmiðið er að bæta samgöngur þarf fyrst að skilgreina viðfangsefnið og skilja pólitíkina eftir heima: Hversu mikil er raunveruleg aukning í umferð, hvar myndast tafir og hvers vegna, hver eru áhrif mismunandi aðgerða á flæði umferðarinnar? Án svara við þessum spurningum er hætt við að lausnirnar verði dýrar og marklausar. Því miður virðist Borgarlínan eiga að vera svarið á vanda sem ekki hefur verið kannaður ofan í kjölinn. Ódýrari og einfaldari lausnum er ýtt út í horn. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar