Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? 6. maí 2026 12:17 Maí árið 2026 er runninn upp og stærstu framkvæmdamánuðir ársins í vegagerð framundan. Vegagerðin hefur þegar boðið út ýmis verkefni sem ráðist verður í á þessu ári víða um land. Enn eru þó mikilvæg verkefni sem bíða þess að komast í útboð – þar á meðal einn versti og hættulegasti vegakafli Vestfjarðavegar (60) í gegnum Dalina, á milli Erpsstaða og Haukadalsár. Sá vegkafli er löngu kominn fram yfir eðlileg öryggismörk. Vegurinn er víða sprunginn, holóttur og mjór og stenst engan veginn þær kröfur sem gera verður til þjóðvega árið 2026. Þetta er ekki aðeins spurning um óþægindi fyrir vegfarendur heldur fyrst og fremst alvarlegt umferðaröryggismál. Umferð um Vestfjarðaveg í gegnum Dalina hefur aukist hratt á síðustu árum. Þar fara daglega heimamenn, atvinnubifreiðar, ferðamenn og fjölmargir aðrir vegfarendur sem margir hverjir eru lítt vanir íslenskum vegaaðstæðum. Það segir sig sjálft að þegar sívaxandi umferð verður á vegi sem er bæði mjór, verulega laskaður og þar með hættulegur að skapist aðstæður sem ekki verða réttlættar til lengdar. Íbúar í Dölum hafa um árabil kallað eftir raunverulegum úrbótum. Dalamenn hafa sýnt þolinmæði og skilning, jafnvel þegar framkvæmdir hafa tafist eða verið færðar til í tíma. Nú hlýtur hins vegar að vera komið að því að efndir fylgi orðum. Ítrekað hefur verið rætt um mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar á Vestfjarðavegi og að framkvæmdir í Dölum væru hluti af þeirri vegferð að bæta samgöngur og auka öryggi á þessari mikilvægu samgönguæð. Það vekur því eðlilega spurningar hvort Dalirnir séu orðnir einhvers konar afgangsstærð í vegakerfinu. Þegar önnur verkefni á öðrum svæðum hljóta framgang en varasamir kaflar sem þessi kaflar bíða áfram verður erfitt fyrir heimafólk að skilja forgangsröðunina. Á sama tíma hafa stjórnvöld sjálf undirstrikað mikilvægi Vestfjarðavegar. Nýlega komu fram jákvæðar tillögur frá starfshópi á vegum innviðaráðuneytisins um að Vestfjarðavegur nr. 60 í gegnum Dalina verði skilgreindur sem hluti af þjóðvegi 1. Slík skilgreining hlýtur að fela í sér auknar kröfur um gæði, öryggi og uppbyggingu. Það verður því að fylgja þeirri stefnumótun eftir í verki en ekki aðeins á blaði. Það er því full ástæða til að hvetja bæði ráðherra samgöngumála og Vegagerðina til að bjóða hið snarasta út framkvæmdir á kaflanum milli Erpsstaða og Haukadalsár og standa þannig við þau fyrirheit sem gefin hafa verið um áframhaldandi uppbyggingu Vestfjarðavegar í Dölum. Vegamál snúast ekki aðeins um að gefa fögur fyrirheit, þau snúast í grunninn um öryggi fólks, jafnræði byggða og trúverðugleika stjórnvalda gagnvart landsbyggðinni. Dalirnir eiga ekki að þurfa að bíða lengur eftir því sem ætti löngu að vera sjálfsagt. Höfundur er sveitarstjóri Dalabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Björn Bjarki Þorsteinsson Dalabyggð Vegagerð Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar