Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar 6. maí 2026 11:45 Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar hefur getið af sér mannréttindaiðnað. Einn angi hans er túlkaþjónusta, geiri sem hefur farið ört vaxandi og orðið mjög ábatasamur, en er aðallega kostaður af skattgreiðendum. Samkvæmt mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar skal tryggja að fólk af erlendum uppruna eigi greiðan aðgang að þjónustu borgarinnar. Ávallt skal kalla til túlk þegar þörf er á því og/eða notandi óskar eftir því. Þjónustan er tryggð að kostnaðarlausu fyrir viðkomandi. Á þessari stefnu er ekkert hámark eða tímamark og ekkert erindi virðist of lítið til að réttlæta aðkeypta túlkaþjónustu. Eins og kerfinu er háttað getur einstaklingur búið hér árum saman og átt í öllum sínum samskiptum við borgarkerfið gegnum túlk á kostnað borgarsjóðs. Það er formlega óþarft að læra íslensku. Veldisvöxtur útgjalda Mest útsvar rennur til einkahlutafélagsins Alþjóðasetur ehf. en veldisvöxtur hefur verið á greiðslum frá borginni á undanförnum árum. Samkvæmt síðustu ársskýrslu nam sala vöru og þjónustu fyrirtækisins 571 milljón árið 2024, mest frá ríki og sveitarfélögum. Það er ekki við fyrirtækið að sakast, að reksturinn sé arðbær, heldur við yfirvöld. Því vaxandi stjórnleysi málaflokksins afhjúpar metnaðarleysi borgaryfirvalda fyrir inngildingu nýbúa. Þörfin á þjónustu sveitarfélaga við erlenda ríkisborgara hefur stóraukist á undanförnum árum. Það er fyrirsjáanleg afleiðing stjórn- og stefnuleysis í málefnum útlendinga. En ákefð borgarinnar í fjárútlátum vegna málaflokksins er áþreifanleg. Hún hangir á nýju hlutverki borgarinnar sem hefur skilgreint sig sem leiðarljós á sviði mannréttinda. En Reykjavíkurborg hefur, í samræmi við mannréttindastefnu sína, farið langt út fyrir það sem eðlilegt má teljast í meðferð á opinberum fjármunum. Langt út fyrir lagalegar skyldur í fjárhagslegu yfirboði á ýmsum mjög sértækum félagslegum málefnum. Bjarnargreiði En borgaryfirvöld gera ekkert góðverk með því bjóða upp á takmarkalausa túlkaþjónustu, ár eftir ár, án kröfu um gagnkvæmni. Það má auk þess greina í gjörningnum ákveðna öðrun; hugtak sem vísar til þess að ákveðnir aðilar séu álitnir öðruvísi en við á grundvelli hópseinkennis; ómegnugir um að vera eins og við, gera eins og við og aðlagast okkur. En íslenskan er tungumál þessa lands og lykillinn að þessu samfélagi. Það er því mikill bjarnargreiði að gera íslenskuna óþarfa og niðurgreiða það með almannafé. Fólk sem hefur flutt heimshorna á milli er upp til hópa fært um að læra íslensku. Það er jafnframt sjálfsögð og eðlileg krafa að þeir sem hingað koma beri ábyrgð á sjálfum sér og eigin velferð. Það er engum greiði gerður með að halda öðru fram. En þeir aðilar sem ekki fást til þess verða sjálfir að mæta kostnaði sem af því hlýst. Það er aðeins sanngjörn krafa í sanngjörnu samfélagi. Því inngildingin getur aldrei bara verið í aðra áttina þó aðlögun geti verið einstefna. En þá verður spurningin; hver á að aðlagast hverjum? Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Hlédís Maren Guðmundsdóttir Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar