Fjölmenning: bölvun eða blessun? Monika K. Waleszczyńska skrifar 7. maí 2026 07:01 Fjölmenning og fjölmenningarsamfélag eru hugtök sem við heyrum oft, en umræðan um þau er oft neikvæð. Orðin eru notuð sem einhvers konar Grýla í samfélaginu. Fjölmenning er í eðli sínu jákvætt hugtak og vísar til samfélags þar sem fólk frá mismunandi menningarheimum og af ólíku þjóðerni býr ekki aðeins saman heldur deilir einnig menningu, gildum og hefðum. Þetta skapar dýrmæt tengsl milli ólíkra hópa, sem eykur skilning og samkennd og hefur blómstrandi áhrif á samfélagið og atvinnulífið,enda erum við flest með mikla þörf fyrir að tilheyra og vera partur af stærri heild. Auðvitað er þessi þörf mismunandi eftir einstaklingum, t.d. hvaða hópum við viljum tilheyra og hversu sterkt við viljum tengjast hverjum hópi. Áður fyrr var lífsnauðsynlegt að tilheyra hópi til að upplifa öryggi, nærast, huga að afkvæmum og verjast óvinum. Höfnun gat jafnvel haft í för með sér lífshættulegar afleiðingar. Í dag þegar við finnum fyrir höfnun eða við fáum vísbendingu um að við tilheyrum ekki, getur það leitt til óttaviðbragðahjá okkur. Hver hefur ekki hugsað: „Af hverju var ég ekki með?“ eftir að hafa séð myndir af vinum á samfélagsmiðlum? Þrátt fyrir að það sé okkur ekki lífsnauðsynlegt að tilheyra ákveðnum hópi getur höfnun leitt til óþæginda sem er einhvers konar arfleifð frá eldri tímum. Að upplifa höfnun getur þannig stuðlað að myndun margmenningarsamfélags, þar sem mismunandi menningarhópar búa saman, oft án mikillar samveru eða tengsla. Þetta getur leitt til einangrunar hópa og haft neikvæðar afleiðingar fyrir atvinnulífið og samfélagið í heild. Innflytjendur: ógn eða tækifæri? Ég er innflytjendi sem kom til Íslands til að vinna fyrir rúmlega 30 árum. Ég kom því það vantaði fólk í vinnu á Vestfjörðum. Ég er ekki ógn fyrir íslenskt samfélag eða íslenska tungu. Flestir innflytjendur vilja að kynnast landinu en í hversdagsleikanum vantar gjarnan tækifæri til að kynnast Íslendingum og menningu landsins. Innflytjendur eru oft með minna bakland hér á landi en flestir Íslendingar og því er erfiðara fyrir þá að finna tengsl við samfélagið. Á sama tíma vinna margir innflytjendur langa daga í erfiðum störfum með takmörkuðum möguleikum á að kynnast Íslendingum, sem hjálpar ekki mikið við inngildingu. Það hvort innflytjendur eru ógn eða tækifæri er undir okkur komið. Til að hætta að ýta undir margmenningu þurfum við að hætta að skipa og byrja að hvetja og fræða fólk því þótt margt sé vel gert þá getum við alltaf gert betur. Kynnumst fólki! Viðreisn vill hvetja fólk til að læra íslensku. Við viljum byggja fjölbreytt samfélag og auðvelda öllum að aðlagast íslenskri menningu. Með því að virkja einstaklinga með erlendan bakgrunn sköpum við betra samfélag og fleiri tækifæri fyrir komandi kynslóðir innflytjenda og barna þeirra. Nelson Mandela sagði “It alwaysseemsimpossibleuntilit’sdone”, sem á íslensku gæti útlagst sem „Það virðist alltaf ógerlegt – þar til það tekst.“ Hættum að horfa á fjölmenninguna sem ógn og leitum tækifæranna í samskiptum við hvort annað. Höfundur skipar 8. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar