Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Aron Guðmundsson skrifar 5. maí 2026 23:02 Chelsea er í vanda statt Vísir/Getty Jamie Carragher, sparkspekingur, segir stöðu Chelsea afar slæma. Félagið sé í miklum vanda en í ömurð þess sé að finna góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni.
Chelsea tapaði 3-1 á heimavelli fyrir Nottingham Forest á mánudaginn síðastliðinn og á í alvöru hættu á að missa af Evrópusæti og það eftir að stórum fjárhæðum hefur verið varið í að fá inn nýja leikmenn. Tveir knattspyrnustjórar hafa verið látnir fara á tímabilinu og hlutirnir bara tekið stefnu til hins verra. Jamie Carragher, sparkspekingur á Sky Sports og fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta lagði sitt mat á stöðu félagsins. „Þetta er sjokkerandi,“ sagði Carragher í uppgjörsþætti Sky Sports. „Og þetta orsakast af ákvörðunum sem eru teknar af toppunum í félaginu.“ Jamie Carragher er sérfræðingur hjá Sky Sports.Vísir/Getty Chelsea hafi verið spilað sundur og saman af B-liði Nottingham Forest. „Fyrir innan við tólf mánuðum síðan lagði liðið PSG að velli.“ Að einhverju leiti góðar fréttir Það skorti tengingu innan félagsins milli manna. „Það er engin tenging milli leikmanna og þjálfarateymisins, leikmanna og stuðningsmanna. Að einhverju leiti eru þetta góðar fréttir því þetta sýnir okkur að fótbolti snýst ekki bara um að eyða peningum, kaupa leikmenn og losa sig við aðra. Fótboltinn snýst um að skapa liðsheild og hana er ekki að finna hjá Chelsea. Félagið lítur út fyrir að vera skemmt.“ Miðað við þessa eyðslu Chelsea í kaup á nýjum leikmönnum ætti liðið að vera berjast um Englandsmeistaratitilinn og að komast langt í Meistaradeildinni. „Við erum að tala um lið sem hefur unnið þá keppni í tvígang á síðustu 15-20 árum. Þetta er ekki lítið lið. Þetta er risalið í Evrópuboltanum.“ Leikmenn þurfi að hætta að ganga í raðir Chelsea. Staðhæfing sem Carragher hefur áður haldið fram. „Það sem ég meina með því er að ef þú ert ítrekað að kaupa og selja leikmenn þá nærðu aldrei að búa til tengingu milli manna sem lið. Þið verðið að ganga í gegnum hluti saman til þess.“ Sem stendur vermir Chelsea 9.sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar að þrjár umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni. Liðið er þó komið áfram í úrslitaleik enska bikarsins og mætir þar Manchester City. Það er eini raunhæfi möguleiki Chelsea á titli á yfirstandandi tímabili.
Chelsea FC Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Sjá meira