Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2026 11:01 Morgan Gibbs-White, allur lurkum laminn eftir leikinn gegn Chelsea. instagram-síða morgan gibbs-white Morgan Gibbs-White, fyrirliði Nottingham Forest, fékk stóran skurð á andlitið eftir samstuð við Robert Sánchez, markvörð Chelsea, í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær. Gibbs-White er í kapphlaupi við tímann að verða klár fyrir einn stærsta leik Forest í langan tíma.
Eftir um klukkutíma í leiknum á Stamford Bridge í gær lentu þeir Gibbs-White og Sánchez í samstuði og þurftu báðir að yfirgefa völlinn. Gibbs-White byrjaði á bekknum í gær en kom inn á sem varamaður í hálfleik og lagði þriðja mark Forest upp fyrir Taiwo Awoniyi. Í gærkvöldi birti Gibbs-White mynd af sér á Instagram og þar sást greinilega hversu illa hann var farinn eftir samstuðið við Sánchez. Nokkur spor voru saumuð í enni og nef Gibbs-White. Forest mætir Aston Villa í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. Vítor Pereira, knattspyrnustjóri Forest, vonast til að geta teflt Gibbs-White fram í þessum mikilvæga leik á Villa Park. „Hann fékk djúpan skurð en við sjáum hvað setur. Hann er baráttumaður og við vonumst eftir kraftaverki. Ég trúi því að hann verði með í næsta leik. Ég sagði við hann: Ekki skalla boltann, bara spila,“ sagði Pereira eftir leikinn gegn Chelsea. Forest vann fyrri leikinn gegn Villa á City Ground með einu marki gegn engu. Liðið stendur því vel að vígi fyrir seinni leikinn eftir tvo daga og á góða möguleika á að komast í sinn fyrsta úrslitaleik í Evrópukeppni í 46 ár. Eftir sigurinn í gær er Forest sex stigum frá fallsæti þegar þremur umferðum er ólokið í ensku úrvalsdeildinni. Forest er taplaust í síðustu tíu leikjum sínum í öllum keppnum og hefur aðeins tapað fjórum af sextán leikjum sínum eftir að Pereira tók við því um miðjan febrúar.
Enski boltinn Nottingham Forest Evrópudeild UEFA Tengdar fréttir Óhugnanlegt atvik á Brúnni Jesse Derry, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea er á batavegi eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg í leik gegn Nottingham Forest í dag og í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. 4. maí 2026 17:57 Forest skellti Chelsea Nottingham Forest fór langt með að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni með 1-3 útisigri á Chelsea í dag. Forest er sex stigum frá fallsæti þegar þremur umferðum er ólokið. Chelsea hefur tapað sex deildarleikjum í röð. 4. maí 2026 16:20 Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira
Óhugnanlegt atvik á Brúnni Jesse Derry, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea er á batavegi eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg í leik gegn Nottingham Forest í dag og í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. 4. maí 2026 17:57
Forest skellti Chelsea Nottingham Forest fór langt með að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni með 1-3 útisigri á Chelsea í dag. Forest er sex stigum frá fallsæti þegar þremur umferðum er ólokið. Chelsea hefur tapað sex deildarleikjum í röð. 4. maí 2026 16:20